Bönn og takmarkanir
Takmarkanir á notkun efna
- efni sem bannað er að nota eða eru háð takmörkunum
Mikill fjöldi hættulegra efna er í notkun hér á landi sem annars staðar og sum þeirra eru jafnvel hluti af daglegu umhverfi fólks. Þessi efni eru mishættuleg allt frá því að vera bráðdrepandi eiturefni í það að valda aðeins óþægindum við ákveðin skilyrði. Markvisst er unnið að því að finna hættuminni lausnir í stað hættulegra efna svo lágmarka megi óæskilega hættu af völdum efnanotkunar. Þrátt fyrir það eru sífellt að koma í ljós hættulegir eiginleikar efna sem hafa verið lengi á markaði og hafa jafnvel árum saman verið talin hættulaus. Sífellt fjölgar þeim efnum sem talin er þörf fyrir að takmörkun eða banni. Hér verður hægt að nálgast margvíslegar upplýsingar um óæskileg efni í vörum á markaði og þau bönn eða takmarkanir sem um þau gilda.
Hættulegustu efnin og þau sem skulu bera varnaðarmerkingar eru talin upp í viðauka reglugerðar nr. 236 frá 1990 um flokkun, merkingu og meðferð eiturefna, hættulegra efna og vörutegunda sem innihalda slík efni. Sérstakar reglur hafa verið settar um notkun ýmissa efna og hefur Umhverfisstofnun hefur nú tekið saman lista yfir öll þessi efni með vísan í viðkomandi reglugerð en Umhverfisstofnun hefur yfirumsjón með framkvæmd þeirra laga og reglna er varða eiturefni og önnur hættuleg efni. Einnig má finna upplýsingar um önnur hættuleg efni og efnahópa sem ástæða er til að varast.
Í listanum koma fram sérstök efni og efnaflokkar sem notkun á er háð takmörkunum eða er bönnuð með öllu og talin eru upp í reglugerðum um dreifingu og meðferð efna sem talin eru hættuleg heilsu og umhverfi.
Bannlistinn er skiptur niður í nokkra flokka. Í heildarlista koma fram bæði efnasambönd og efnaflokkar sem eiga við efni sem listuð eru sérstaklega. Á eftir nafni efnis kemur CAS nr., svo tilvísun í viðkomandi reglugerð, þvínæst er gefið upp í hvað efnið er notað og hvaða hætta stafar af því. Að lokum kemur hámarksstyrkur efnis í vöru ef hann er gefinn upp. Reglugerðirnar sem vísað er í eru allar aðgengilegar á þessari síðu.
Efni á sérlista eru fengin úr reglugerðum nr. 748/2003 um snyrtivörur, nr. 857/1999 um afurðir úr olíu- og kolavinnslu og nr. 586/2002 um ósoneyðandi efni.
Ákveðin efni eða flokkar efna hafa verið tekin til sérstakrar umfjöllunar á síðunni sem hægt er að sjá með því að smella á viðkomandi efni eða flokk.
Þá hefur verið tekinn saman sérstakur listi yfir efni og efnaflokka sem gripið hefur verið til aðgerða gegn á alþjóðlegum vettvangi eða í nágrannalöndum okkar eða ef slíkar aðgerðir eru fyrirhugaðar.
Listi yfir bönnuð og takmörkuð efni

