Ný flokkun og merking
Reglugerð um flokkun, merkingu og umbúðir efna og efnablandna
Í undirbúningi er að setja nýja reglugerð um flokkun, merkingu og umbúðir efna og efnablandna sem koma mun í stað reglugerðar nr. 236/1990. Með nýju reglugerðinni verður komið á nýju flokkunarkerfi efna og efnablandna sem tekið verður upp í áföngum. Reglugerðin mun alfarið byggja á EB reglugerð nr. 1272/2008 sem þekkt er undir skammstöfuninni CLP (classification, labelling and packaging) þar sem tekið er upp samræmt flokkunar- og merkingarkerfi efna á heimsvísu.
Áætluð útgáfa reglugerðar um innleiðingu EB-reglugerðar 1272/2008 verður næsta vor. Fleiri upplýsingar munu birtast á þessari síðu um undirbúning á nýrri reglugerð.
| Reglugerð (EB) nr. 1272/2008 (1355 bls., 6,58 MB) | Á ensku | Á íslensku |
|---|---|---|
| Efnisyfirlit | skoða | |
| Hættumerki | skoða | |
| Hættuflokkar | skoða | |
| Hættusetningar | skoða | skoða |
| Varnaðarsetningar | skoða | |
| Viðvörunarorð | danger/ warning | hætta/ varúð |
| Efnalistar | 3.1 3.2 | ekki tilbúnir |
Íslenskar þýðingar verða settar inn í töfluna um leið og þær eru tilbúnar. Heildarþýðing á reglugerðinni verður ekki tilbúin fyrr en í sumar.
Upplýsingar um reglugerð í undirbúningi (uppfært 20. ágúst 2010)
Bréf sent hagsmunaaðilum 20. nóvember 2009
Nánari skýringar á einstökum reglugerðarákvæðum (uppfært 11. apríl 2010)
Upplýsingar frá Efnastofnun Evrópu (ECHA):
Umhverfisstofnun mun starfrækja sérstakt þjónustuborð í tengslum við innleiðingu CLP reglugerðar líkt og með REACH. Þessi síða er vísir að slíku þjónustuborði. Umhverfisstofnun mun vinna með Efnastofnun Evrópu og yfirvöldum í öðrum ríkjum við að afla upplýsinga og svör við innsendum spurningum.
Senda spurningu til Umhverfisstofnunar
Núverandi efnalisti í fylgiskjali 1 við reglugerð nr. 236/1990 verður ekki uppfærður frekar. Búið er að samþykkja breytingar á listanum og verða breytingarnar aðeins birtar hér á ensku uns ný reglugerð tekur gildi. Hér er um að ræða uppfærslu á VI. viðauka í CLP reglugerðinni sem inniheldur flokkun skv. báðum flokkunarkerfunum. Í töflunni hér að ofan eru efnalistarnir uppfærðir með nýjustu breytingum, 3.1 er nýi listinn en 3.2 sá gamli.Reglugerð (EB) nr. 790/2009 (breytingar á efnalistum í viðauka VI við CLP reglugerð) (439 bls., 8,42 MB)
CLP er hluti af alþjóðlegu kerfi um flokkun og merkingu efna sem var í þróun í mörg ár og var lokið við árið 2002. Það hefur verið kallað Grunnur að hnattrænni samræmingu flokkun og merkingar efna (GHS) (á ensku: Globally Harmonized System for Classification and Labelling og Chemicals). Breytingar á GHS fara fram á vettvangi SÞ (UNECE).
GHS hættutáknin á heimasíðu UNECE
Fyrirlestur Gunnlaugar Einarsdóttur um samræmda flokkun og merkingu á heimsvísu
Eldri frétt á ust.is um samræmt kerfi á heimsvísu
Uppfært 20.8.2010

