Friðlýsingar
Þjóðgarðar Friðlönd Náttúruvætti Fólkvangar Tegundir og búsvæði
Reglur um friðlýst svæði eru mismunandi og fara eftir markmiðum friðlýsingar, eðli svæðisins og samkomulagi við hagsmunaaðila. Íslendingar hafa friðlýst um 90 svæði skv. lögum um náttúruvernd. Friðlýstum svæðum er skipt í þjóðgarða, friðlönd, náttúruvætti, fólkvanga og tegundir og búsvæði. Auk þess eru svæði friðlýst með sérlögum. Í náttúruminjaskrá er þeirra svæða getið sem eru merkileg vegna náttúrufars en hafa ekki hlotið friðlýsingu.

