Friðlýst svæði
Aldeyjarfoss
Friðlýst svæði
Með friðun tryggjum við rétt okkar og komandi kynslóða til að njóta ósnortinnar náttúru. Ósnortin náttúra er takmörkuð auðlind, auðlind sem á heimsvísu fer þverrandi.
Reglur um friðlýst svæði eru mismunandi og fara eftir markmiðum friðlýsingar, eðli svæðisins og samkomulagi við hagsmunaaðila. Íslendingar hafa friðlýst rösklega 80 svæði skv. lögum um náttúruvernd. Þessi svæði eru lýst þjóðgarðar, friðlönd, náttúruvætti, fólkvangar eða tegundir og búsvæði.

