Landvarsla á friðlýstum svæðum

Landvarsla

Á hverju vori halda landverðir til starfa til þjóðgarða og á önnur náttúruverndarsvæði víðs vegar um landið. Störf landvarða eru svipuð en þó ólík frá einu svæði til annars. Margbreytni starfsins ræðst meðal annars af fjölbreyttri náttúru, ólíkum ferðamönnum sem koma víðs vegar að og mismunandi aðstæðum á svæðunum. Á sumum svæðum starfar aðeins einn landvörður, á öðrum vinnur hópur þeirra. Landverðir hafa ólíka menntun og reynslu en margir þeirra eru kennarar eða háskólanemar. Áhugi á náttúru og náttúruvernd sameinar hópinn í starfi. Ráðningartími landvarða er yfir sumarmánuðina en stefnt er að því að fjölga störfum heilsárslandvarða.

Barnastund, landvörður

Margþætt hlutverk landvarða

Móttaka og fræðsla

Landverðir taka á móti gestum og veita þeim nauðsynlegar upplýsingar um náttúru, staðhætti og sögu svæðanna, tjaldsvæði, gönguleiðir, akvegi og nánast hvað annað er ferðamanninn fýsir að vita. Á nokkrum svæðum er gestastofa og skrifstofa þar sem ferðamenn geta gengið að landvörðum vísum til að fá upplýsingar og aðstoð. Þáttur í starfi sumra landvarða er að sjá um rekstur tjaldsvæða og/eða gistiskála.

Náttúrutúlkun

Víða bjóða landverðir gestum upp á náttúrutúlkun. Náttúrutúlkun er sérstakt form fræðslu til að auka ánægju, upplifun og áhuga ferðamanna á umhverfinu. Markmið náttúrutúlkunar er að auka skilning fólks á náttúrunni. Jafnframt vekja með því virðingu fyrir henni, með það fyrir augum að þekking leiði til virðingar og virðingin til verndunar. Náttúrutúlkun er beitt í styttri sem lengri gönguferðum, barnastundum,  fyrirlestrum, gestastofum og í óformlegu spjalli hvar sem tækifæri gefst.

Náttúruvernd og eftirlit

Landvörðum ber að gæta þess að ákvæði friðlýsingar og náttúruverndarlaga séu virt. Þeir fylgjast með því að réttur náttúrunnar sé virtur, meðal annars með því að hafa eftirlit með umferð og umgengni fólks. Landverðir sjá um að merkja göngustíga, leggja nýja og halda þeim við. Á þann hátt opna þeir svæðin fyrir umferð gangandi manna en búa jafnframt  þannig um að náttúran hljóti sem minnstan skaða af.

Alltaf til taks!

Gestir geta leitað til landvarða hvenær sem þörf krefur. Á náttúruverndarsvæðum eru landverðir oft eina staðkunnuga fólkið sem hægt er að leita til í neyðartilfellum og þá reynir á áræðni þeirra og útsjónarsemi, stundum við erfiðar aðstæður. Landverðir, brúargerð, Snæfellsjökull

Menntun

Til að fá réttindi sem landvörður þarf fólk að ljúka sérstöku námskeiði í náttúruvernd og landvörslu sem Umhverfisstofnun og nokkrir aðrir aðilar standa að. Landvarðanámskeið eru að jafnaði haldin annað hvert ár. Þátttakendur þurfa að vera orðnir 20 ára, vera með stúdentspróf eða aðra sambærilega menntun eða reynslu. Á námskeiðinu er fjallað um náttúruvernd og álitamál um landnýtingu, jarðfræði, líffræði, lög og reglur, stígagerð, þjónustuhlutverk, framkomu, leiðsögn og náttúrutúlkun svo nokkuð sé nefnt. Í framtíðinni er stefnt að því að samræma menntun landvarða í Evrópu.

 

 

Landvarðafélag Íslands

Landvarðafélag Íslands var stofnað 1976 og er fjöldi félaga nú um 200. Hlutverk þess er að vinna að hagsmunum Landvörður, Drekagilfélagsmanna, vera forsvarsaðili þeirra út á við og kynna hlutverk og störf landvarða. Félagar hafa tekið þátt í baráttunni fyrir verndun íslenskrar náttúru og þá gjarnan í samvinnu við frjáls félagasamtök. Landvarðafélagið hefur átt fulltrúa bæði á náttúruverndar- og umhverfisþingum, unnið greinargerðir og sent frá sér yfirlýsingar er varða náttúruverndarmál. Í samstarfi við Umhverfisstofnun hefur félagið stuðlað að fræðslu og símenntun landvarða. Landvarðafélag Íslands er aðili að Alþjóðasamtökum landvarða. Náið samstarf er á milli skoska landvarðafélagsins og þess íslenska meðal annars með heimsóknum og landvarðaskiptum á milli landanna.

 






Leit


Útlit síðu:

þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica vefhönnunvefhönnun - nánari upplýsinga á heimasíðu eplica.