Útivist í íslenskri náttúru
Almannaréttur
Umgengni og útivist
Eitt af meginmarkmiðum náttúruverndalaga er að auðvelda umgengni og kynni þjóðarinnar af náttúru landsins og menningarminjum. Réttur almennings til ferða um landið var rýmkaður verulega við gildistöku laga nr. 44/1999 um náttúruvernd en þau tóku gildi í júlí 1999.
Hin almenna regla er að almenningi er heimil för um landið og dvöl þar. Öllum er skylt að ganga vel um náttúru landsins og sýna ýtrustu varúð þannig að henni verði ekki spillt. Einnig ber að sýna landeiganda og öðrum rétthöfum fulla tillitssemi og virða hagsmuni þeirra.
Umhverfisstofnun hvetur til aukinnar útivistar landsmanna og styður það meðal annars með skipulagi útivistarsvæða, stofnun fólkvanga, upplýsingaveitu og fræðslu. Náttúruverndarlögin tryggja almenningi dvöl og umferð um lönd utan landareigna lögbýla.

