Líffræðileg fjölbreytni

Líffræðileg fjölbreytni

18.12.2007

Líffræðileg fjölbreytni felur í sér alla fjölbreytni plantna, dýra og örvera, sem og fjölbreytni vistkerfa og erfðafræðilega fjölbreytni innan tegunda. Útdauði tegunda í heiminum á sér stað með ógnvænlegum hraða og er tap á líffræðilegri fjölbreytni að mestu leyti af mannavöldum.  

Úttekt SÞ á vistkerfum (Millennium Ecosystem Assessment) frá árinu 2005 gaf til kynna að athafnir manna á síðastliðnum 50 árum hefðu breytt vistkerfum heimsins meira en á nokkru öðru skeiði í sögu mannkynsins.  Þýðingarmestu þættirnir á bak við þessar tilhneigingar eru m.a. eyðing búsvæða, ágengar framandi tegundir, ósjálfbær nýting náttúruauðlinda, loftslagsbreytingar og mengun.  

Í skýrslunni (State of biodiversity in the Nordic counitries) er bent á að dregið hafi hratt úr líffræðilegum fjölbreytileika á Norðurlöndum síðan 1990. Niðurstaða skýrslunnar er að aðgerða sé þörf og einnig að endurskoða þurfi áherslur í náttúruvernd á Norðurlöndum ef takast á að snúa þróuninni við. Jafnframt er talið  nauðsynlegt að samræma vöktun líffræðilegs fjölbreytileika en í dag er mikill munur á því hvernig það er gert í norrænu ríkjunum sem gerir allan samanburð erfiðan. Skýrslan er hluti af verkefninu NordBio2010 og verður m.a. grundvöllur ráðstefnu um líffræðilega fjölbreytileika sem Norræna ráðherranefndin heldur í haust.

Til baka, Senda grein, Prenta greinina

 






Leit


Útlit síðu:

þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica innrinetinnrinet - nánari upplýsinga á heimasíðu eplica.