Forsíðugreinar
Breska sendiráðið veitir styrk til sjálfboðaliðastarfs í Skaftafelli
Sjálfboðaliðastarf í Skaftafelli
Umhverfisráðherra Sigríður Anna Þórðardóttir heimsótti sjálfboðaliða í Skaftafell í gær ásamt breska sendiherranum og starfsmönnum Umhverfisstofnunar. Heimsóknin var í tilefni af styrk sem Breska sendiráðið veitti nýlega til sjálfboðaliðastarfs í Skaftafelli.
Fjöldi sjálfboðaliða starfar í þjóðgörðum og á friðlýstum svæðum á ári hverju og sinna þeir þar meðal annars uppbyggingu göngustíga, lagfæringum og viðhaldi.
Styrkurinn var nýttur til að bæta aðstöðu í skála sem sjálfboðaliðar hafa til afnota.

