Forsíðugreinar
Ársfundur Náttúruverndarnefnda og Umhverfisstofnunar 2006
Föstudaginn 10. nóvember síðastliðinn var ársfundur Umhverfisstofnunar og Náttúruverndarnefnda haldinn í Hafnarborg Hafnarfirði.
Umhverfisráðherra flutti ávarp, en síðan voru flutt ýmiskonar erindi sem aðallega var beint til nýrra meðlima náttúruverndarnefnda.
Í lok fundarins var farið í skoðunarferð um Krísuvík undir leiðsögn Jónatans Garðarssonar og Skógræktarfélag Hafnarfjarðar tók höfðinglega á móti ráðstefnugestum í starfsmannahúsi við Kaldársselsveg.
Sameiginlegur kvöldverður var að lokum í Hellinum í Fjörukránni.
Hér fyrir neðan má nálgast ávarp umhverfisráðherra og nokkra af fyrirlestrum fundarins:
Ávarp umhverfisráðherra Jónínu Bartmarz
Lög um Náttúruvernd – áhersla á hlutverk náttúruverndarnefnda
Árni Bragason forstöðumaður Umhverfisstofnun
Mat á umhverfisáhrifum
Sigurrós Friðriksdóttir fagstjóri Umhverfisstofnun
Skipulag frístundabyggða
Ólafur Arnar Jónsson sérfræðingur Umhverfisstofnun
Náttúrustofur landshlutanna – samstarf við náttúruverndarnefndir
Þorsteinn Sæmundsson forstöðumaður Náttúrustofu Norðurlands vestra
Staðardagskrá 21 – hlutverk náttúruverndarnefnda
Arnheiður Hjörleifsdóttir sérfræðingur UMÍS
Gildi útivistarsvæða fyrir lýðheilsu
Haukur Þór Haraldsson sviðstjóri Lýðheilsustöð
Tillaga að friðlýsingu landsvæða í Hafnarfjarðar
Guðfinna Guðmundsdóttir formaður umhverfisnefndar Hafnarfjarðar
Samantekt
Davíð Egilson forstjóri Umhverfisstofnun

