Umhverfisstjórnun

Umhverfisstjórnun

 

Umhverfisstjórnun er skipulagt umhverfisstarf sem miðar að því að hafa stjórn á umhverfisáhrifum starfseminnar og vinna markvisst að stöðugum umbótum í umhverfisstarfinu í samræmi við umhverfisstefnu.

Á undanförnum árum hefur færst í vöxt að fyrirtæki og stofnanir byggi upp skipulagt umhverfisstarf í starfsemi sinni og hefur það leitt til margs konar ávinnings s.s. betri nýtingu aðfanga, minni umhverfisáhrifa, bættrar ímyndar, sparnaðar og ánægðara starfsfólks. Hægt er að fara ýmsar leiðir til þess en oft er það gert með því að innleiða umhverfisstjórnunarkerfi í starfsemina. Umhverfisstjórnunarkerfi byggir á því að vinna skipulega að stöðugum umbótum í umhverfisstarfinu og þannig lágmarka neikvæð umhverfisáhrif starfseminnar. Það er gert með því að vinna skipulega með þýðingarmikla umhverfisþætti starfseminnar sem hluta af daglegu starfi.

Umhverfisstjórnunarkerfi sem byggt er upp samkvæmt ákveðnum stöðlum getur fengið vottun óháðs aðila. Dæmi um viðurkennda alþjóðlega staðla eru ISO 14001 og EMAS. Vottað umhverfisstjórnunarkerfi er sönnun þess að starfsemi uppfylli tilteknar kröfur um markvissa stjórnun umhverfisþátta og stöðugar umbætur á frammistöðu í umhverfismálum í samræmi við umhverfisstefnu.

logo_isologoemas_02
Umhverfisstjórnun nær til fjölmargra þátta í starfsemi fyrirtækja og stofnana m.a. vöruþróunar, framleiðslu, innkaup, þjónustu og markaðssetningu. Hér til hliðar má finna upplýsingar um atriði sem geta aðstoðað fyrirtæki og stofnanir við að vinna skipulega að umhverfisstarfi:

  • Umhverfisvísar veita upplýsingar um stöðu umhverfismála. Með því að fylgjast vel með umhverfisvísum eða grænum lykiltölum í starfseminni er auðveldara að setja markmið og sjá hvar úrbóta er þörf.
  • Vistvæn innkaup er markviss leið til að taka tillit til umhverfissjónarmiða jafnt sem kostnaðar og gæða við innkaup.
  • Umhverfismerki auðvelda fyrirtækjum að framleiða og markaðssetja umhverfisvæna vöru og þjónustu. Notkun umhverfismerkja er áreiðanleg leið til að koma á framfæri umhverfisupplýsingum um vöru eða þjónustu til neytenda og innkaupaaðila. Dæmi um áreiðanleg umhverfismerki er norræna umhverfismerkið Svanurinn og umhverfismerki Evrópubandalagsins Blómið.


 






Leit


Útlit síðu:

þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica veflausnirveflausnir - nánari upplýsinga á heimasíðu eplica.