Veiðitímabil nokkurra fuglategunda hefst í dag
Veiðitímabil á öndum þ.e stokkönd, urtönd, rauðhöfðaönd, duggönd, skúfönd, hávellu og toppönd hefjast í dag miðvikudaginn 1. september. Helsingja er einnig leyfilegt að veiða frá og með deginum í dag utan Skaftafellssýslna en þar má ekki veiða helsingja fyrr en 25. september. Veiðar á svartfugl þ.e álku, langvíu, stuttnefju, teistu og lunda hefjast einnig í dag ásamt því að leyft er að veiða dílaskarf, toppskarf, fýl, hvítmáf, hettumáf, og ritu.
Lesa meira
Greiðsla staðfestingargjalds úthlutaðra hreindýraveiðileyfa
Síðasti greiðsludagur staðfestingargjaldsins er miðvikudagurinn 31.mars. Ekki er hægt að greiða 1. apríl. Ef greiðsla berst ekki fyrir tilskilinn tíma hefur veiðimaður afsalað sér úthlutuðu leyfi og því verður úthlutað til næsta manns í biðröð.
Lesa meira
Málþing um skotveiðar
Málþing á vegum Umhverfisstofnunar um skotveiðar á Íslandi verður haldið á Grand Hótel laugardaginn 20.mars. Á málþinginu verða flutt erindi um helstu veiðitegundir á Íslandi, veiðistjórnun, sjálfbærar veiðar og veiðitölur. Allir velkomnir.
Lesa meira- Hreindýraveiðileyfi - biðlisti
- Um 2700 fylgdust með útdrætti í beinni
- Hlekkur á útdrátt hreindýraveiðileyfa
- Útdráttur hreindýraveiðileyfa
- Úthlutunarreglur hreindýraveiðileyfa
- Hreindýrakvóti
- Skilavefurinn er opinn
- Hreindýraarður
- Hófsamar veiðar
- Aldrei fleiri á veiðikorta- og skotveiðinámskeið
- Myndband um sjálfbærar veiðar á rjúpu
- Rjúpnaveiðar hefjast föstudaginn 30. október
- Breytingar á fyrirkomulagi rjúpnaveiða
- Gæsaveiðitímabilið að hefjast
- Aldrei of varlega farið
- Staðfestingargjald - greiðsluseðlar
- Aðgangsorð fyrir netskil veiðiskýrslna

