Stök frétt

Kalka sorpeyðingarstöð sf. hefur sótt um breytingu á starfsleyfi sínu. Breytingin felst í að stækka núverandi starfssvæði þannig að Berghólabraut 7a verði til viðbótar.
Áformað er að nota lóðina sem geymslusvæði.

Sérfræðingar munu nú hefja vinnu við málið. Fallist stofnunin á að breyta starfsleyfinu verður tillaga að breyttu starfsleyfi auglýst opinberlega í fjórar vikur og verður almenningi gefin kostur á að koma með athugasemdir.