Stök frétt

Mynd: Laxar Fiskeldi ehf., Eldisstöðin Bakki 1
Umhverfisstofnun hefur móttekið umsókn Laxa Fiskeldis ehf. vegna breytinga á starfsleyfi þess að Bakka, Ölfusi.

Á næstunni verður unnin tillaga að breytingu á starfsleyfinu og í framhaldinu er gert er ráð fyrir að hún verði auglýst í fjórar vikur.
Öllum gefst tækifæri til að koma með athugasemdir á auglýsingatíma áður en ákvörðun um útgáfu starfsleyfisins verður tekin.