Stök frétt

Umhverfisstofnun hefur móttekið umsókn Reykjagarðs hf. um starfsleyfi vegna þéttbærs þauleldis alifugla að Ásmundarstöðum í Ásahreppi.

Á næstunni verður unnin tillaga að starfsleyfinu og í framhaldinu er gert er ráð fyrir að hún verði auglýst í fjórar vikur.

Öllum gefst tækifæri til að koma með athugasemdir á auglýsingatíma áður en ákvörðun um útgáfu starfsleyfisins verður tekin.