Stök frétt

Mynd: Krystian Tambur - Unsplash
Umhverfisstofnun hefur unnið tillögu að starfsleyfi vegna landeldis Nesvegs 5 ehf. Ásmundarnesi Bjarnarfirði. Um er að ræða eldi laxfiska á landi með fráveitu í sjó. Heimiluð verður 45 tonna ársframleiðsla með allt að 45 tonna lífmassa í stöðinni á hverjum tíma.

Að mati Umhverfisstofnunar eru helstu áhrif vegna eldisins losun næringarefna bæði á föstu formi og uppleystu í viðtakann. Áætluð losun næringarefna verður undir þeim mörkum sem almennt er miðað við varðandi losun í sjó með þeirri hreinsun sem rekstaraðili hyggst notast við. Hægt er að endurskoða fyrirkomulag fráveitu frá eldinu og gera auknar kröfur í hreinsun bendi mælingar til að hreinsun sé ábótavant samkvæmt mælingum.

Athugasemdir við starfsleyfistillöguna skulu vera skriflegar og sendar Umhverfisstofnun (ust@ust.is) merkt UST202203-131, athugasemdir verða birtar við útgáfu nema annars sé óskað.

Frestur til að skila inn athugasemdum er til og með 5. janúar 2023.

Greinargerð mun fylgja starfsleyfi við útgáfu sbr. 6. gr. reglugerðar nr. 550/2018.

Tengd skjöl:
Umsókn um starfsleyfi
Tillaga að starfsleyfi