Svanurinn
Svansmerktum fyrirtækjum á Íslandi fer sífellt fjölgandi. Verður þitt fyrirtæki næst?
Svanurinn er opinbert norrænt umhverfismerki. Strangar kröfur Svansins um lágmörkun umhverfisáhrifa tryggja að Svansmerkt vara er betri fyrir umhverfið og heilsuna. Með því að velja Svansmerkta vöru og -þjónustu stuðlar þú að betra umhverfi og bættri heilsu frir þig og þína, án þess að fórna gæðum.
Af hverju ætti ég að fá Svansvottun á mína vöru eða þjónustu?
- Rekstrarsparnaði
- Bættri ímynd
- Betri þjónustu
- Betri ferilstjórnun
- Bættri frammistöðu í umhverfismálum
- Betri samkeppnishæfni í vistvænum innkaupum
Er Svanurinn traust og trúverðugt merki?
- Svanurinn er opinbert umhverfismerki Norðurlandanna
- Svansmerkið er leiðandi umhverfismerki í heiminum
- Vörumerkið hefur mjög sterka markaðsstöðu
Hvernig fæ ég vottun?
- Þú sækir um Svaninn hjá Umhverfisstofnun
- Þitt fyrirtæki vinnur að því að standast viðmið og endurskoða innri ferli
- Vottunaraðili kemur og tekur út framleiðslu vörunnar/þjónustunnar
- Ef þú uppfyllir viðmiðin færð þú vottunina
Vistvæn innkaupastefna ríkisins
- Ríkisstjórnin samþykkti í lok mars 2009 stefnu um vistvæn innkaup ríkisins
- Svansmerking þinnar vöru eða þjónustu er einfaldasta leiðin til að uppfylla umhverfisskilyrði við vistvæn innkaup
Í dag eru til Svansskilyrði fyrir rúmlega 60 mismunandi flokka
vöru og þjónustu. Yfir 6.000 vöru- og þjónustumerki bera nú merki
Svansins.
Svanurinn er opinbert umhverfismerki Norðurlandanna
Svansmerkið er leiðandi umhverfismerki í heiminum
Vörumerkið hefur mjög sterka markaðsstöðu
Kannanir sýna að Svanurinn hefur mjög sterka markaðsstöðu. Svanurinn er meðal tíu sterkustu vörumerkjanna í Finnlandi skv. nýlegri könnun og verðmæti merkisins er talið vera um 85 milljónir evra. Rannsóknir á Norðurlöndum hafa þar að auki sýnt fram á að það er auðveldara að ná árangri með nýja vöru ef hún er Svansmerkt og neytendur hafa ekki jafn mikla verðmeðvitund gagnvart Svansmerktri vöru. Kostir þess að vera með Svansvottun ættu því að vera ótvíræðir.
Reynsla fyrirtækja sem hafa fengið vottun sýnir að þau hafa náð:
Rekstrarsparnaði
Bættri ímynd
Neytendur gera sífellt meiri kröfur um að geta valið vöru og þjónustu sem hefur minni umhverfisáhrif og er betri fyrir heilsuna. Svanurinn er vel þekkt umhverfismerki sem neytendur vita að tryggir gæði. Fyrirtæki geta því stolt auglýst að vara þeirra eða þjónusta hefur hlotið Svansvottun og sé því betri fyrir umhverfið og heilsuna. Þannig eykst samkeppnishæfni fyrirtækja með Svansvottun.
Betri þjónustu
Starfsmenn fyrirtækja sem fá Svansvottun taka þátt í aðlögunarferlinum og verða því yfirleitt áhugasamir, virkir og meðvitaðir þátttakendur í að bæta vöruna eða þjónustuna. Með því að fá Svansvottun er einnig verið að koma til móts við óskir æ fleiri viðskiptavina um að bjóða upp á vöru eða þjónustu sem er betri fyrir umhverfið og heilsuna.
Betri ferilstjórnun
Bættri frammistöðu í umhverfismálum
Svansvottun er trúverðug leið til að sýna fram á að fyrirtæki sé að vinna að umhverfismálum því að bætt frammistaða í umhverfismálum er óhjákvæmileg afleiðing vottunarferilsins. Fyrirtæki sem hlotið hafa Svansvottun hafa á hnitmiðaðan hátt sýnt fram á að verið sé að lágmarka umhverfisáhrif vöru eða þjónustu fyrirtækisins og Svansvottun gerir jafnframt kröfu um stöðugar umbætur.
Betri samkeppnishæfni í vistvænum innkaupum
Þú getur fengið kynningarfund um Svaninn
Starfsmenn Svansins geta heimsótt fyrirtækið þitt og kynnt þér og þínum starfsmönnum nánar hvað felst í því að sækja um og vera með Svansvottun. Starfsmenn Svansins hjá Umhverfisstofnun kanna hvort sú vara eða þjónusta sem þú vilt láta votta tilheyri einhverjum þeirra vöruflokka sem viðmið Svansins ná yfir. Hafðu samband við okkur.
Þú sækir um Svaninn hjá Umhverfisstofnun
Þú sækir um Svansvottun og greiðir umsóknargjald skv. gjaldskrá Umhverfisstofnunnar, sem er vegna vinnu við meðferð umsóknarinnar. Þú getur nálgast umsóknareyðublaðið hér.
Þitt fyrirtæki vinnur að því að uppfylla kröfur og endurskoða innri ferli
Viðmiðunarreglur Svansins eru sérsniðnar að hverjum vöruflokki eða tegund þjónustu fyrir sig. Starfsmenn Svansins benda þér á hvar þú getur nálgast viðmiðunarreglur fyrir þína vöru eða þjónustu, en svo er komið að þér að kanna að hversu miklu leyti starfssemi þín uppfyllir viðmið Svansins og hverju þarf að breyta til að svo verði. Fyrir flestar vörur eða þjónustu er hægt að notast við samnorrænar vefgáttir til að halda utan um skrár og kerfismat við undirbúning vottunar. Þessi undirbúningsvinna tekur yfirleitt nokkra mánuði, allt eftir því hversu langt á veg fyrirtækin eru komin áður en ferlið hefst. Gerðar eru strangar kröfur um skjalfestingu og að hægt sé að fara sönnur fyrir því að búið sé að mæta viðmiðum Svansins.
Vottunaraðili kemur og tekur út framleiðslu vörunnar eða þjónustuna
Þegar þú og starfsmenn Svansins sammælast um að tímabært sé að fara í úttekt fara starfsmenn Svansins yfir umsóknina og öll gögn sem henni fylgja og ganga úr skugga um að forvinnunni sé lokið. Ákveðin er dagsetning fyrir úttekt, en þá fer úttektarmaður á staðinn og sannreynir að umsóknargögnin endurspegli í reynd framleiðslu vörunnar eða framkvæmd þjónustunnar.
Ef viðmið eru uppfyllt færð þú vottunina
Búast má við því að úttektarmaður setji fram einhverjar athugasemdir eftir fyrstu úttekt. Þegar brugðist hefur verið við þeim hlýtur varan eða þjónustan Svansvottun. Þú hefur gengið í gegnum strangt ferli og mátt nú stoltur nota Svansmerkið þér til framdráttar við kynningu vöru þinnar eða þjónustu.
Viðmiðin eru mismunandi eftir vöru– og þjónustuflokkum
Til þess að áreiðanleiki Svansins sé sem mestur fer vottun á hverjum vöru- eða þjónustuflokki fram út frá sérhæfðum viðmiðum, en í dag eru til rúmlega 60 mismunandi flokkar af vöru og þjónustu sem geta fengið vottun. Innan hvers flokks eru svo margar tegundir vöru og þjónustu en yfir 6000 vörutegundir bera í dag Svansmerkið og búið er að gefa út 2000 leyfi.
Hér má nálgast öll viðmið Svansins á ensku og norðulandatungumáli.
Viðmiðin eru unnin í samstarfi við sérfræðinga og fyrirtæki á sviðinu
Þegar tekin er ákvörðun um hvort þróa eigi ný viðmið fyrir Svaninn er tekið mið af því hversu umfangsmikil umhverfisáhrif hljótast af umræddri vöru eða þjónustu frá vöggu til grafar, hvaða möguleikar eru á því að draga úr umhverfisáhrifum og hvort Svansmerkingin sjálf geti haft jákvæð áhrif á val neytenda og þróun innan vöru– eða þjónustuflokksins til langs tíma. Teymi óháðra sérfræðinga er sett saman til að móta viðmið Svansins fyrir hvern vöru– eða þjónustuflokk fyrir sig. Áður en ákvörðun um viðmiðunarreglur er tekin er auglýst eftir athugasemdum frá atvinnulífinu, umhverfisverndarsamtökum og yfirvöldum í opnu umsagnar– og samráðsferli.
Viðmiðin eru endurskoðuð á þriggja til fjögurra ára fresti
Endurskoðun á viðmiði hefst í raun um leið og fyrsta vottunin fer fram skv. viðkomandi viðmiði. Endurskoðunarferlið er að mörgu leiti svipað grunnvinnunni sem liggur að baki mótunar á nýju viðmiði, því fram fer rýni allra þátta sem liggja til grundvallar viðkomandi viðmiði. Sækja þarf um endurvottun þegar ný viðmið taka gildi.
Regluleg endurskoðun viðmiða tryggir stöðugar umbætur
Tilgangur endurskoðunar er að stuðla að stöðugum endurbótum, bæði á viðmiðunum sjálfum og framsetningu þeirra en einnig á því hvaða kröfur eru settar til grundvallar Svansmerkingu viðkomandi vöru eða þjónustu. Verkferli sífelldrar endurskoðunar leiðir af sér markvissar umbætur sem skilar sér í bæði traustu umhverfismerki og gæðum vottaðrar vöru og þjónustu.
Svanurinn er ekki rekinn í hagnaðarskyni
Rekstur Svansins er að hluta fjármagnaður með opinberum fjárframlögum í gegnum rekstur Umhverfisstofnunar og að hluta með gjöldum sem innheimt eru fyrir umsóknir um og notkun á Svansmerkinu. Fyrirtæki sem hafa leyfi til að nota Svaninn á tiltekna vöru eða þjónustu sem seld er á Íslandi greiða gjald samkvæmt gjaldskrá Svansins, sjá nánar neðar. Íslenskir leyfishafar Svansins sem flytja út vöru til hinna Norðurlandanna greiða að sama skapi gjald til Svansins í viðkomandi löndum.
Gjöld vegna Svansins tengjast þróun á viðmiðum, umsóknarumsýslu og kynningarmálum. Svanurinn er ekki rekinn í hagnaðarskyni, en rekstrinum fylgir þó ýmis kostnaður.
Kostnaður tengist í megindráttum eftirfarandi þáttum:
- Þróun á viðmiðunarreglum. Að þróa kröfur fyrir hvern vöruflokk er nákvæmnisvinna sem tekur tíma og verður að vinna afar vel. Það tekur um þrjú til fjögur ár að móta kröfur fyrir nýjan vöruflokk.
- Umsýsla vegna umsókna og eftirlits með vörum/þjónustu. Þegar fyrirtæki sækir um leyfi til að nota Svaninn tekur það að jafnaði um þrjár vinnuvikur að ganga úr skugga um að allar upplýsingar frá fyrirtækinu standist.
- Mikilvægt er að veita upplýsingar og kynna umhverfismerkið Svaninn fyrir neytendum, framleiðendum, innflytjendum og söluaðilum. Kynningarherferðir og önnur markaðssetning miðar að því að kynna Svaninn og auka sölu á Svansmerktum vörum og þjónustu.
Kostnaður þinn felst í umsóknargjaldi og árgjaldi
Gjöld vegna Svansins eru greidd til Umhverfisstofnunnar, umsjónaraðila Svansins á Íslandi. Umsóknargjald er greitt samhliða umsókn um Svansmerkið og nemur það 300 þúsund krónum. Lítil fyrirtæki greiða lægra umsóknargjald eða 150 þúsund krónur en lítil fyrirtæki teljast þau sem eru með 10 starfsmenn eða færri og heildarveltu undir 200 milljónum króna.
Árgjald er skilgreint eftir því hvort um ræðir Svanvottaða vöru eða Svansvottaða þjónustu. Vegna Svansvottaðrar vöru er greitt árgjald sem samsvarar 0,3% af ársveltu vörunnar en vegna Svansvottaðrar þjónustu samsvarar árgjaldið yfirleitt um 0,15% af ársveltu þjónustunnar. Árgjald vegna Svansvottunar er að lágmarki 50 þúsund krónur, en hámarksárgjald er mismunandi eftir vöru og þjónustuflokkum.
Svaninum er stjórnað af norrænni nefnd
Svaninum er stjórnað af sameiginlegri nefnd; Norrænu Umhverfismerkisnefndinni (NMN, Nordisk Miljömärkningsnämd). Nefndin mótar sameiginlega stefnu Svansins og ákveður fyrir hvaða vöruflokka og þjónustu skuli útbúa vottunarskilyrði. Í hverju landi er svo umhverfismerkisráð sem sér um stefnumótun í samræmi við norræna stefnu og þá stofnun sem hefur umsjón með daglegum rekstri Svansins.
Á Íslandi sitja í umhverfismerkisráði fulltrúar Umhverfisstofnunar, Samtaka verslunar og þjónustu, Landverndar, Nýsköpunarmiðstöðvar, Samtaka iðnaðarins, Staðlaráðs Íslands, Samtaka ferðaþjónustu og Neytendasamtakanna. Fulltrúi Umhverfisstofnunar er formaður ráðsins.
Umhverfisstofnun hefur umsjón með Svaninum á Íslandi
Á Íslandi sér Umhverfisstofnun um daglegan rekstur Svansins. Starfsmenn stofnunarinnar sjá um málefni Svansins á Íslandi, m.a. norrænt samstarf, ráðgjöf og aðstoð við íslensk fyrirtæki sem sækja um Svaninn, vottun og leyfisveitingu, kynningu á Svaninum ásamt skrásetningu á erlendum Svansmerktum vörum.
Það er markmið Umhverfisstofnunar að umhverfismerkingar muni í stórauknum mæli leiða innkaup almennings og fyrirtækja. Umhverfisstofnun vinnur að því að efla starfsemi Svansins á Íslandi, auka verulega hlutfall Svansmerktrar vöru og þjónustu á markaði og efla áhuga almennings og fyrirtækja á Svaninum og öðrum umhverfismerkingum.
Kröfur Svansins eru strangar og Svansmerkið er þannig trygging fyrir því að um sé að ræða vandaða vöru eða þjónustu. Þú getur treyst því.




