Söluleyfi eiturefna
Hér með sæki ég undirrituð/aður um leyfi, sem veitir heimild til þess að selja og/eða flytja inn sterkt eitur og/eða eitur sem skráð er á lista samkvæmt 1. gr. laga nr. 52/1988 um eiturefni og hættuleg efni, sbr. 6. gr. sömu laga.
Umsækjandi skal hafa kynnt sér reglur um útlát eiturefna og þær skyldur sem sölustaður þarf að uppfylla, áður en sótt er um leyfið.
Umsókninni skal fylgja vottorð frá Vinnueftirliti ríkisins, yngra en tveggja ára, um skoðun á eiturefnageymslum og aðbúnaði starfsfólks og vottorð frá heilbrigðiseftirliti
í viðkomandi sveitarfélagi um starfsemi og starfshætti fyrirtækisins.
Að auki þarf að skila nákvæmum upplýsingum um samsetningu vörunnar að lágmarki þeim upplýsingum sem fram koma á öryggisblöðum frá framleiðanda/birgja.




