Efni og efnavörur

Efni og efnavörur

Umhverfisstofnun fer með málefni sem varða efni og efnavöru. Stofnunin hefur umsjón með reglugerðum, innleiðingu á gerðum vegna aðildar að EES og sér um kynningu og útgáfum á fræðsluefni sem tengjast notkun á efnavöru (sjá nánar í valflokkum í valmynd vinstra megin). Hér er að finna aðgengilegar upplýsingar um efni og efnavöru eins og fréttir, fræðsluefni, einstakar greinar og tenglar inn á vefsíður með efni þessu tengt.

Umhverfisstofnun sér um veitingu leyfa til garðaúðara og meindýraeyða. Umhverfisstofnun heldur utan um skráningu varnarefna til notkunar hérlendis og skráningar efna til markaðssetningar og notkunar á Evrópska efnahagssvæðinu þar með talin sæfiefni.

Umsögn stofnunarinnar þarf fyrir leyfi til innflutnings og sölu eiturefna og samþykki fyrir innflutningi á eiturefnum í hvert skipti.

Stofnunin hefur eftirlit með innflutningi eiturefna og yfirumsjón með eftirliti á vegum Heilbrigðiseftirlits sveitarfélaga hvað varðar sölu og meðhöndlun á efnavöru.

Upplýsingar um efni og efnavöru:

Reglugerðir

Efnalistar

Tenglar

Fréttir

Útgefið efni

Umsóknir

 

     
 reach-250px  GHS_heilsusk
 REACH: Skráning, mat, leyfisveitingar og takmarkanir efna  Ný flokkun og merking efna (CLP)
 

Nýjar fréttir og greinar um efnavörur







Leit


Útlit síðu:

þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica heimasíðurheimasíður - nánari upplýsinga á heimasíðu eplica.