Lög og reglugerðir

Lög og reglugerðir

Gildandi lög um eiturefni og hættuleg efni eru frá 1988. Reglugerðirnar hafa flestar stoð í þessum lögum. Ný og yfirgripsmeiri lög um þennan málaflokk eru í undirbúningi.

Reglugerðum á þessu sviði hafa fjölgað verulega eftir að EES samningurinn tók gildi og sífellt koma nýjar og víðtækari reglugerðir. Hér er hugmyndin að hafa þessar reglugerðir aðgengilegar fyrir neytendur, atvinnulífið og áhugafólk um umhverfismál og neytendavernd á sviði efna og efnavara. Athugið að hægt er að skoða reglugerðalistann eftir málaflokkum annars vegar og í tímaröð hins vegar.

Stöðugt er verið að vinna að útgáfu nýrra reglugerða. Hér má nálgast upplýsingar um nokkrar þær reglugerðir sem eru í undirbúningi og vænta má að snerti hagsmuni atvinnulífsins, neytenda eða annarra hópa. Þannig verður áhugasömum hér gert kleift að koma athugasemdum sínum á framfæri og óska eftir nánari upplýsingum.

 






Leit


Útlit síðu:

þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica vefkerfivefkerfi - nánari upplýsinga á heimasíðu eplica.