Þarft þú að skrá?

Þarft þú að skrá?

16.7.2010

REACH reglugerðin gildir um innflutning, framleiðslu, setningu á markað og notkun efna, hvort sem þau eru hrein, í efnavörum eða hlutum. Innflytjendur/framleiðendur skulu skrá efni ef þeir flytja þau inn á evrópska efnahagssvæðið eða framleiða þau þar í meira magni en 1 tonn á ári. Athugið þó að magn efna hefur ekki áhrif á ákvæði um leyfisveitingar, takmarkanir og bönn, flokkun og merkingu né útgáfu öryggisblaða fyrir hættuleg efni.

Hægt er að nýta sér hjálpartæki Efnastofnunarinnar, The Navigator, til að finna út hvort viðkomandi efni/starfsemi heyri undir REACH. Auk þess getur eftirfarandi skýringarmynd komið að góðum notum.

Undanþágur frá REACH

Þó nokkrar undanþágur eru í REACH reglugerðinni sem byggjast á eðli og notkun efnanna. Hér fyrir neðan eru tilgreind þau efni sem eru undanþegin REACH reglugerðinni og EKKI þarf að skrá.

Tilraunaglos_001

Efni/efnaflokkar sem ekki falla undir ákvæði REACH

  • Geislavirk efni (Um þau gilda lög 44/2002 um Geislavarnir og reglugerðir settar skv. þeim)
  • Úrgangur (um hann gilda lög 55/2003 um meðhöndlun úrgangs og reglugerðir settar skv. þeim)
  • Efni, hrein eða í efnavörum eða hlutum, sem eru undir tollaeftirliti, eru í tímabundinni geymslu, á frísvæðum eða í tollfrjálsum vörugeymslum og sem ætlunin er að flytja út aftur eða eru í umflutningi.
  • Efni sem aðildarríki ákveða að undanþiggja ákvæðum REACH vegna nauðsynlegra aðstæðna, t.d. vegna varnarhagsmuna.
  • Óeinangruð milliefni (efni sem verða til í efnahvörfum og eru aldrei skilin frá/einangruð)
  • Hættuleg efni og efnavörur sem fluttar eru með járnbrautum, á vegum, eftir skipgengum vatnaleiðum, á sjó eða í lofti.

Efni sem eru undanþegin ákvæðum um skráningu

  • Matvæli og fóður sem og aukefni í matvælum og fóðri (t.d. bragðefni og litarefni)
  • Lyf fyrir menn og dýr (reglugerð)
  • Efni sem eru tilgreind í viðaukum IV og V í REACH reglugerðinni.
  • Efni sem skráð hefur verið skv. REACH og er endurunnið í Bandalaginu þannig að sama efnið fæst við endurvinnsluna og það sem hefur verið skráð.
  • Efni sem þegar hafa verið skráð skv. ákvæðum REACH, flutt út frá Bandalaginu og svo inn á það aftur.
  • Fjölliður eru undanþegnar ákvæðum um skráningu og mat, en ekki reglum um leyfisveitingar og takmarkanir. Ef einliða er til staðar í fjölliðu í meira magni en sem nemur 2% miðað við þyngd, og heildarmagnið er meira en 1 tonn/ári á hvern framleiðanda eða innflytjanda þarf að skrá hana hafi hún ekki þegar verið skráð.
  • Efni sem eingöngu eru notuð í ferlamiðuðum rannsóknum og þróunarvinnu efna og efnavara (PPORD-efni) eru undanþegin skráningu í 5 ár, með möguleika á framlengingu í 5 ár til viðbótar. Efni sem eingöngu eru notuð til þróunar á lyfjum fyrir menn og dýr, sem og þau efni sem ekki eru sett á markað eru undanþegin skráningu í 10 ár.

Efni sem teljast þegar skráð, skv. REACH

  • Virk efni og hjálparefni sem eru í sæfiefnum og varnarefnum eru skilgreind sem skráð efni í REACH, ef þau eru á skrá í viðaukum í þeim reglugerðum sem gilda um þau (reglugerð nr. 1101/2004 m.s.br. og reglugerð nr. 50/1984 m.s.br.). Ef efnin eru notuð á annan hátt, skal skrá þau skv. ákvæðum í REACH.
  • Ný efni sem skráð voru skv. reglugerð um tilkynningaskyldu varðandi ný efni nr. 815/1998, eru skilgreind sem skráð efni í REACH. Efnastofnun Evrópu lætur framleiðendum þessara efna í té skráningarnúmer í síðasta lagi þann 1. desember 2008. Ef aukning hefur orðið á framleiðslu efnisins síðan það var skráð, skal senda inn þær upplýsingar sem upp á vantar til að fullnægja skráningu.


Efni sem eru undanþegin ákvæðum II. Bálks um skráningu að undanskildum ákvæðum í 8. og 9. grein

  • Einangruð milliefni, sem eru notuð á staðnum og einangruð milliefni, sem eru flutt. Reglur um þessi efni má finna í greinum 17-19 í REACH.

Ekki þarf að meta áhrif eftirfarandi efna á heilsu manna og skrá í öryggisskýrslu ef notkunin er sértæk. Þó þarf að skrá efnin skv. almennum ákvæðum í II. Bálk

 






Leit


Útlit síðu:

þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica vefkerfivefkerfi - nánari upplýsinga á heimasíðu eplica.