Hávaði
Hljóð er bylgjuhreyfing í lofti. Eðlisfræðilega er enginn munur á hávaða og hljóði, en frá sálrænu sjónarhorni er hljóð upplifun. Hávaði er skilgreindur sem óæskilegt eða skaðlegt hljóð.
Hávaði er talinn eitt af stærstu heilbrigðisvandamálum nútímans. Þó hávaði sé ekki lífshættulegur getur hann haft mikil áhrif á heilsu okkar og lífsgæði. Áhrif hans fara eftir því af hvaða toga hávaðinn er, tíðnisvið hans og styrkleika, hvernig hann breytist með tímanum og á hvaða tíma sólarhringsins við heyrum hann.
Mælieining fyrir hljóð er desiBel (dB) sem er lógaritmískur skali, þannig að 3ja dB hækkun á hljóðstigi jafngildir tvöföldun á styrkleika þess. Til þess að taka tillit til breytilegrar næmni mannseyrans fyrir mismunandi tíðni hljóðs, er við mælingar beitt ákveðinni síu og er þá talað um dB(A). Venjulegt samtal getur verið um 60 dB. Fari hávaði yfir ákveðin mörk getur hann farið að valda heyrnarskemmdum. Hættumörk eru talin vera við 80-85 dB jafngildishljóðstig eða við styttri hljóðtoppa 120-130 dB.
Hættan eykst með auknum hljóðstyrk og lengd þess tíma sem dvalið er í hávaða.

Hávaði er nánast alls staðar í daglegu umhverfi okkar og uppspretturnar margar, bæði í vinnuumhverfinu og þar sem við verjum frítíma okkar, jafnt heima sem heiman.
- Umferð á láði, legi og í lofti
- Tæknibúnaður innan dyra sem utan
- Iðnaður og atvinnustarfsemi
- Hávaði frá nágrönnum
- Byggingastarfsemi og ýmis konar framkvæmdir
- Íþróttir og líkamsrækt
- Tómstundir og menningarviðburðir
Í þéttbýli er það aðallega hávaði frá umferð og nágrönnum sem angrar fólk, auk hvers kyns tækjabúnaðar í byggingum.
Hávaði á/frá vinnustöðum er m.a. margs konar vélarhljóð svo sem frá blásurum, kælipressum, hristurum, kvörnum og vinnuvélum af ýmsu tagi. Hljóðdæmi frá Vinnueftirlitinu með upplýsingum um áhrif hávaða (mp3). Á skrifstofum veldur ýmis konar utanaðkomandi hávaði truflun, en einnig geta loftræsikerfi, ljósritunarvélar, prentarar og tölvur o.fl. valdið truflun. Í skólum og leikskólum eru það gjarnan athafnir barnanna sem valda mestum hávaða. Frekari fróðleik og upplýsingar um hávaða á vinnustöðum má finna á vefsíðum Vinnueftirlitsins.
Hávaði á tónleikum, diskótekum, akstursíþróttasvæðum, frá vélsögum, vasadiskóum, leikföngum og flugeldum veldur oft heyrnarskaða.
Í reglugerðum er að finna ákvæði um hávaða á vinnustöðum, hönnun húsa varðandi hljóðvist þeirra og um hávaðamörk utanhúss. Þá geta heilbrigðisnefndir gefið fyrirmæli vegna ónæðis af hávaða á skemmtistöðum, frá hljómflutningstækjum og öðrum tækjum á almannafæri.
Byggingarfulltrúar, heilbrigðiseftirlit sveitarfélaga og Vinnueftirlit ríkisins hafa eftirlit með hljóðhönnun húsa, hávaða og mæla hljóðstig og ómtíma. (ómtími er sá tími sem tekur hljóð að deyja út).
Á hávaðasömum vinnustöðum þar sem jafngildishljóðstig er yfir 85 dB á að skaffa starfsfólki heyrnarhlífar, en í skólum og leikskólum er ekki hægt að nota slíkt.
Hávaðamælingar í skólum, leikskólum, íþróttahúsum og sundhöllum hér á landi sýna að þessir staðir uppfylla ekki kröfur um ómtíma auk þess sem meðaltal hljóðstigs þar er oft yfir hættumörkum ( 80-85 dB ). Þetta er verulegt áhyggjuefni einkum vegna þess að heyrn barna er viðkvæmari en fullorðinna. Þá sýna niðurstöður mælinga á tónleikum að þar fer hávaði oft langt yfir hættumörk.
Hávaði dregur mjög úr lífsgæðum, hann getur valdið varanlegum heyrnarskaða og eyrnasuði, hann truflar svefn og hvíld, dregur úr málskilningi og námsgetu og veldur stressi.
Heyrnarskerðing er algengasta afleiðing hávaða og algengasti óafturkræfi vinnuskaðinn.
Hávaði getur breytt eðlislægu svefnmynstri. Svefntruflanir geta svo leitt m.a. til þreytu, streitu, depurðar og minnkaðrar framkvæmdahæfni. Streita veldur svo m.a. aukinni framleiðslu streituhormóna, hækkun blóðþrýstings og eykur hættu á hjarta- og æðasjúkdómum.
Rannsóknir sýna að mikill hávaði hefur neikvæð áhrif á málþroska og náms- og lestrargetu barna. Börn eiga erfiðara með að greina talað mál út úr hávaða en fullorðnir. Fyrst við 13-15 ára aldur hafa þau náð sömu hæfni og fullorðnir hvað þetta varðar. Talið er að stóran hluta lestrarörðugleika hjá börnum megi rekja til hávaða í kennslustofunni.
Væg heyrnardeyfa hjá börnum og fullorðnum dregur verulega úr hæfni þeirra til þess að skilja mál og ná hátíðnihljóðum (6 – 8000 Hz), einkanlega þar sem hljómburður er lélegur. Margir óraddaðir samhljóðar hafa tíðnina 6 – 8000 Hz en talið er að 60% af getu okkar til að heyra rétt, og þar með skilja það sem sagt er, byggist á því að heyra samhljóða, en aðeins 5% byggi á getunni til þess að heyra sérhljóða.
Bandarískar rannsóknir hafa leitt í ljós að um 70% framhaldskólanema hafa greinst með forstigseinkenni af varanlegri heyrnardeyfu. Einnig fjölgar ört þeim unglingum sem þjást af eyrnasuði (tinnitus) og segja margir þeirra að það hafi byrjað eftir að þeir höfðu hlýtt á háværa tónlist. Ætla má að ástandið hér á landi sé ekki mjög frábrugðið því sem er í Bandaríkjunum.
Á vinnustöðum er reynt að draga úr hávaða véla og tækja með ýmsum ráðum og starfsfólki útvegaðar heyrnahlífar þar sem jafngildishávaði er > 85 dB. Reynt er að draga úr hávaða frá umferð með byggingu hljóðmana og bættu skipulagi. Á undanförnum árum hefur verið unnið að því að framleiða hljóðlátari bíla, flugvélar og ýmis önnur tæki, en fjölgun þeirra dregur úr gagnsemi þessara aðgerða.Mikilvægt er að gætt sé að hljóðvist húsnæðis strax á hönnunarstigi og því síðan fylgt eftir að rétt sé staðið að málum, því erfitt og kostnaðarsamt er að bæta úr göllum eftir á. Til er hljóðflokkunar staðall fyrir húsnæði, sem eðlilegt er að nota við hönnun húsnæðis. Í eldra húsnæði er hægt að bæta hljóðvist m.a. með því að setja hljóðeinangrandi efni í loft og niður á veggi, nota frekar mjúk gólfefni en hörð og að nota millilag þar sem hörð gólfefni eru notuð. Í skólum og leikskólum má, auk þessa, huga að fækkun barna í kennslustofum, breyttri dagskrá, skipta bekkjum upp í minni hópa, nýta allt húsnæðið, nota mottur þar sem leikið er með hávær og hörð leikföng, setja tappa undir borð- og stólfætur o.s.frv. Þá er mikilvægt að velja vel hönnuð húsgögn, sem ekki valda miklum hávaða.
Umhverfisstofnun hefur látið útbúa leiðbeiningar um hljóðvistarkröfur í umhverfi barna í samræmi við 11. grein í reglugerð nr. 724/2008, um hávaða.
Útgáfa leiðbeininga um hljóðvistarkröfur íumhverfi barna er þríþætt, leiðbeiningar þessar sem gefnar eru út af Umhverfisstofnun og tvennar leiðbeiningar til viðbótar sem gefnar eru út af Mannvirkjastofnun. Allar þrjár útgáfurnar fjalla um þau atriði sem koma fram hér að neðan. Í þessum leiðbeiningum er lögð áhersla á mörk fyrir hávaða í umhverfi barna, eftirlit með hljóðvist í umhverfi barna og góð ráð gegn hávaða í umhverfi barna. Mannvirkjastofnun leggur sérstaka áherslu á hönnun húsnæðis þar sem börn dvelja og hætta er talin á að hávaði geti valdið þeim ónæði eða verið heilsuspillandi, annars vegar í nýju húsnæði og hins vegar í breyttu húsnæði. Vísað er til annarra leiðbeininga þar sem þörf er talin á.
Leiðbeiningar þessar fjalla um:
- Íslenski staðallinn „Hljóðvist – Flokkun íbúðar- og atvinnuhúsnæðis“
- Reglugerð um hávaða
- Byggingarreglugerð
- Eftirlit með hljóðvist í umhverfi barna
- Hönnun húsnæðis þar sem börn dvelja
- Góð ráð gegn hávaða í umhverfi barna
Kortlagning hávaða og aðgerðáætlanir
Fyrsti áfangi
Vegagerðin og sveitarfélög kortleggja nú í þremur áföngum hávaða á stórum vegum og þéttbýlissvæðum á Íslandi. Fyrsta áfanga er lokið. Þar voru kortlagðir stórir vegir, eða hlutar þeirra, sem hafa allir umferð meira en 6 milljón ökutækja á ári og eru staðsettir innan höfuðborgarsvæðisins. Vegnúmer þeirra eru 1, 40, 41, 49, 413 og 418. Hávaðamælingar og útreikningar hafa farið fram áður á öllum þessum vegum. Sums staðar hafa sveitarfélög gripið til ráðstafana, þar sem hávaði hefur reynst vera yfir settum mörkum, t.d. með uppsetningu hljóðmana og styrkir veittir til glerskipta.
Miðað er við að hávaði frá vegum, við húsvegg fyrir íbúðarhúsnæði á íbúðar-, verslunar-, þjónustu- og miðsvæðum, fari ekki yfir 55-65 dB LAeq24 (meðaltalsgildi hávaða yfir einn sólarhring).
Útreikningar sýna að hávaði fer yfir 55 dB Lden við húsveggi um 14.000 íbúða á svæðinu eða hjá allt að 24.000 íbúum. Þessar niðurstöður gefa vísbendingu um hvar hávaði kunni að vera yfir mörkum. Það ber þó að líta til þess að hávaðakortin eru reiknuð m.v. 4 metra hæð en reglugerð um hávaða kveður á um að viðmiðunarhæð utan við húsvegg sé 2 metra hæð og viðmiðunarmörk innanhúss eru við lokaða glugga. Þar sem mælingarnar eru í 4 metra hæð kunna þær að vera misvísandi fyrir lágreista byggð. Einnig hefur sums staðar verði gripið til ráðstafana til þess að draga úr hávaða sem ekki er tekið tillit til í þessum útreikningum.
Nánari upplýsingum um hvort hávaði sé yfir mörkum við byggingar verður safnað saman í næsta áfanga sem fer fram síðar á þessu ári. Þá liggja fyrir nákvæmari upplýsingar um við hvaða byggingar hávaði er yfir mörkum. Í þriðja áfanga, á árinu 2013, ber sveitarfélögum skylda til þess að gefa út aðgerðaráætlanir fyrir þau svæði þar sem hávaði er áætlaður yfir viðmiðunarmörkum.
Hávaðakortin eru aðgengileg hér að neðan.
Upplýsingar um skyldur og mælingar skv. reglugerðum og tilskipun
Hávaðakort fyrir stóra vegi með umferð meiri en 6 milljón ökutækja á ári hafa verið unnin og Umhverfisstofnun safnaði saman og sendi niðurstöður útreikninga til Eftirlitsstofnun EFTA skv. ákvæðum tilskipunar 2002/49/EB um mat og stjórn á hávaða í umhverfinu. Ísland innleiddi tilskipunina árið 2005 og eru hávaðakortin fyrir þessa stóru vegi, fyrsta stig af þremur í kortlagningu hávaða á stórum vegum og á þéttbýlissvæðum á Íslandi.
Við kortlagningu hávaða á vegum með umferð meiri en 6 milljón ökutæki á ári var hávaði reiknaður m.v. 4 metra hæð og gefinn upp í Lden (meðaltalsgildi hávaða yfir einn sólarhring) og Ln (gildi hávaða að nóttu til) gildunum. Niðurstöður útreikninga eru settar fram á hávaðakortum, þar sem mismunandi litir standa fyrir mismunandi dB-gildisbil.
Hávaðakort fyrir stóra vegi með umferð 3-6 milljón ökutækja á ári og þéttbýlissvæði með fleiri en 100.000 íbúa verða tilbúin undir lok þessa árs (2012) og mun þá öðru stigi kortlagningarinnar vera lokið. Aðgerðaáætlanir, þriðja stigið, verða gefnar út árið 2013 fyrir þau svæði þar sem hávaði mælist yfir viðmiðunarmörkum. skv. reglugerð um hávaða nr. 724 frá árinu 2008. Í kjölfarið eiga sveitarfélög, í samstarfi við veghaldara, að vinna að aðgerðaráætlunum sem miða að því að draga úr áhrifum frá hávaða á vegum. Aðgerðaráætlanir eiga að vera tilbúnar um mitt ár 2013.
Hávaðakort
Reykjavík
- Ln kort
- Reykjavík yfirlit (PDF 46 MB)
- Eiðisgrandi - Hringbraut (PDF 4.6 MB)
- Hringbraut (PDF 5 MB)
- Hringbraut - Miklabraut (PDF 8.9 MB)
- Miklabraut (PDF 13.4 MB)
- Miklabraut (PDF 8 MB)
- Ártúnsholt - Vesturlandsvegur (PDF 3.1 MB)
- Vesturlandsvegur - Suðurlandsvegur (PDF 3.4 MB)
- Suðurlandsvegur (PDF 2.3 MB)
- Eiðisgrandi - Ánanaust - Mýrargata (PDF 4.6)
- Mýrargata - Geirsgata - Kalkofnsvegur (PDF 6.1 MB)
- Sæbraut - Kringlumýrarbraut (PDF 4.3 MB)
- Sæbraut (PDF 6.6 MB)
- Sæbraut (PDF 4 MB)
- Sæbraut - Reykjanesbraut (PDF 5 MB)
- Reykjanesbraut (PDF 3.7 MB)
- Reykjanesbraut (PDF 3.5 MB)
- Kringlumýrarbraut (PDF 8.2 MB)
- Kringlumýrarbraut (PDF 12.5 MB)
- Kringlumýrarbraut (PDF 11.3 MB)
- Kringlumýrarbraut (PDF 6 MB)
- Lden kort
- Reykjavík yfirlit (PDF 11.6 MB)
- Eiðisgrandi - Hringbraut (PDF 1.1 MB)
- Hringbraut (PDF 1.3 MB)
- Hringbraut - Miklabraut (PDF 1.9 MB)
- Miklabraut (PDF 1.8 MB)
- Miklabraut (PDF 1.9 MB)
- Ártúnsholt - Vesturlandsvegur (PDF 1.2 MB)
- Vesturlandsvegur - Suðurlandsvegur (PDF 1.1 MB)
- Suðurlandsvegur (PDF 560 KB)
- Eiðisgrandi - Ánanaust - Mýrargata (PDF 1.1 MB)
- Mýrargata - Geirsgata - Kalkofnsvegur (PDF 1.5 MB)
- Sæbraut - Kringlumýrarbraut (PDF 1.1 MB)
- Sæbraut (PDF 890 KB)
- Sæbraut (PDF 1.3 MB)
- Sæbraut - Reykjanesbraut (PDF 1.8 MB)
- Reykjanesbraut (PDF 1.5 MB)
- Reykjanesbraut (PDF 1.6 MB)
- Kringlumýrarbraut (PDF 1.6 MB)
- Kringlumýrarbraut (PDF 1.7 MB)
- Kringlumýrarbraut (PDF 1.9 MB)
- Kringlumýrarbraut (PDF 1.5 MB)
Kópavogur
- Ln kort
- Hafnarfjarðarvegur yfirlit (PDF 7.5 MB)
- Hafnarfjarðarvegur N (PDF 11.5 MB)
- Hafnarfjarðarvegur S (PDF 9.3 MB)
- Reykjanesbraut yfirlit (PDF 2.5 MB)
- Reykjanesbraut N (PDF 1.3 MB)
- Reykjanesbraut S (PDF 3.3. MB)
- Nýbýlavegur (PDF 1.3 MB)
- Lden kort
- Hafnarfjarðarvegur yfirlit (PDF 1.9 MB)
- Hafnarfjarðarvegur N (PDF 1.6 MB)
- Hafnarfjarðarvegur S (PDF 1.2 MB)
- Reykjanesbraut yfirlit (PDF 1.8 MB)
- Reykjanesbraut N (PDF 800 KB)
- Reykjanesbraut S (PDF 960 KB)
- Nýbýlavegur (PDF 780 KB)
Garðabær
- Ln kort
- Hafnarfjarðarvegur yfirlit (PDF 2.6 MB)
- Hafnarfjarðarvegur N (PDF 2.6 MB)
- Hafnarfjarðarvegur S (PDF 3.4 MB)
- Reykjanesbraut yfirlit (PDF 2.5 MB)
- Reykjanesbraut N (PDF 1.3 MB)
- Reykjanesbraut S (PDF 2.3 MB)
- Lden kort
- Hafnarfjarðarvegur yfirlit (PDF 1.8 MB)
- Hafnarfjarðarvegur N (PDF 750 KB)
- Hafnarfjarðarvegur S (PDF 830 KB)
- Reykjanesbraut yfirlit (PDF 1.9 MB)
- Reykjanesbraut N (PDF 790 KB)
- Reykjanesbraut S (PDF 650 KB)
Hafnarfjörður
- Ln kort
- Hafnarfjörður yfirlit (PDF 3.6 MB)
- Vellir - Strandgata (PDF 1.5 MB)
- Kaldárseldsvegur - Lækjagata (PDF 1.5 MB)
- Lækjarskóli (PDF 1.4 MB)
- Hraun (PDF 1 MB)
- Lden kort
- Hafnarfjörður yfirlit (PDF 3.2 MB)
- Vellir - Strandgata (PDF 1.1 MB)
- Kaldárseldsvegur - Lækjagata (PDF 1.2 MB)
- Lækjarskóli (PDF 1.2 MB)
- Hraun (PDF 760 KB)
Mosfellsbær
- Ln kort
- Mosfellsbær yfirlit (PDF 2.5 MB)
- Skarhólabraut (PDF 8.2 MB)
- Hlíðar og Holt (PDF 1.7 MB)
- Varmá (PDF 1.2 MB)
- Reykjavegur (PDF 1 MB)
- Lden kort
- Mosfellsbær yfirlit (PDF 1.9 MB)
- Skarhólabraut (PDF 660 KB)
- Hlíðar og Holt (PDF 1.2MB)
- Varmá (PDF 840 KB)
- Reykjavegur (PDF 460 KB)
Annar áfangi
Útreikningar fyrir stóra vegi á öllu landinu með umferð 3 til 6 milljón ökutækja á ári sýna að hávaði fer yfir 55 dB Lden við húsveggi um 20.200 íbúða eða hjá allt að 46.000 íbúum. Útreikningar fyrir þéttbýlissvæði sýna að hávaði fer yfir 55 dB Lden vegna vega með umferð 3 til 6 milljón ökutækja á ári við húsveggi um 20.000 íbúða eða hjá allt að 45.500 íbúa og vegna iðnaðarsvæða við húsveggi allt að 700 íbúða. Þessar niðurstöður gefa vísbendingu um hvar hávaði kunni að vera yfir mörkum. Það ber þó að líta til þess að hávaðakortin eru reiknuð m.v. 4 metra hæð en reglugerð um hávaða kveður á um að viðmiðunarhæð utan við húsvegg sé 2 metra hæð og viðmiðunarmörk innanhúss eru við lokaða glugga. Þar sem mælingarnar eru við 4 metra hæð kunna þær að vera misvísandi fyrir lágreista byggð. Einnig hefur sums staðar verið gripið til ráðstafana til þess að draga úr hávaða sem ekki er tekið tillit til í þessum útreikningum og byrjað er að reikna út hávaðakort fyrir þéttbýlissvæði m.v. 2 metra hæð sem gefa munu betri mynd af raunástandi byggðar.Það eru Vegagerðin og sveitarfélög sem vinna að því að kortleggja hávaða á stórum vegum og á þéttbýlissvæðum á Íslandi í þremur áföngum. Fyrsta áfanga var lokið í júlí 2012 þegar stórir vegir sem hafa umferð meira en 6 milljón ökutækja á ári voru kortlagðir. Í öðrum áfanga skyldi kortleggja hávaða á stórum vegum með umferð 3 til 6 milljón ökutækja á ári og á þéttbýlissvæðum. Öðrum áfanga er nú lokið. Stórir vegir með umferð 3 til 6 milljón ökutækja á ári eru staðsettir innan höfuðborgarsvæðisins, Reykjanesbæ, Selfoss og Akureyri. Fimm sveitarfélög falla undir skilgreint þéttbýlissvæði sem skyldi kortleggja en þau er Reykjavík, Seltjarnarnes, Kópavogur, Garðabær og Hafnarfjörður. Hávaðamælingar og útreikningar hafa farið fram á flest öllum vegunum áður, sveitarfélög hafa víða gripið til ráðstafana þar sem hávaði hefur reynst vera yfir settum mörkum, t.d. með uppsetningu hávaðamana og styrkir veittir til glerskipta. Hávaðakort fyrir vegina og þéttbýlissvæðin má sjá hér fyrir neðan. Einnig greinagerðir fyrir hvert sveitarfélag fyrir sig sem fjalla meðal annars um niðurstöður mælinga og útreikninga, fjölda íbúa sem verða fyrir hávaða og hljóðvarnir.
Miðað er við að hávaði frá vegum, við húsvegg fyrir íbúðarhúsnæði á íbúðar-, verslunar-, þjónustu- og miðsvæðum, fari ekki yfir 55-65 dB LAeq24 (meðaltalsgildi hávaða yfir einn sólarhring).
Í þriðja áfanga sem ljúka skal á árinu 2013 ber sveitarfélögum skylda til þess að gefa út aðgerðaráætlanir fyrir þau svæði þar sem hávaði er áætlaður yfir viðmiðunarmörkum.
Upplýsingar um skyldur og mælingar skv. reglugerðum og tilskipun
Hávaðakort fyrir stóra vegi með umferð 3 til 6 milljón ökutækja á ári og fyrir þéttbýlissvæði hafa verið unnin og Umhverfisstofnun safnaði saman og sendi niðurstöður útreikninga til Eftirlitsstofnuna EFTA skv. ákvæðum tilskipunar 2002/49/EB um mat og stjórn á hávaða í umhverfinu. Ísland innleiddi tilskipunina árið 2005 og eru hávaðakortin fyrir þessa vegi og þéttbýlissvæðin annar áfangi af þremur í kortlagningu hávaða á stórum vegum og á þéttbýlissvæðum á Íslandi.
Við kortlagningu hávaða á vegum með umferð 3 til 6 milljón ökutækja á ári og á þéttbýlissvæðum var hávaði reiknaður m.v. 4 metra hæð og gefinn upp í gildunum Lden (meðaltalsgildi hávaða yfir einn sólarhring) og Ln (gildi hávaða að nóttu til). Niðurstöður útreikninga eru settar fram á hávaðakortum, þar sem mismunandi litir standa fyrir mismunandi dB-gildisbil. Fyrstu tveimur áföngum kortlagningarinnar er nú lokið. Aðgerðaáætlanir, þriðji áfangi, verða gefnar út árið 2013 fyrir þau svæði þar sem hávaði reiknast yfir viðmiðunarmörkum skv. reglugerð um hávaða nr. 724 frá árinu 2008. Sveitarfélög í samstarfi við veghaldara vinna að aðgerðaáætlunum sem miða að því að draga úr áhrifum frá hávaða á vegum og á þéttbýlissvæðum.
Hávaðakort
Stórir vegir með umferð 3 til 6 milljón ökutækja á ári, allt landið:
Reykjavík
- Lden
- Vesturhluti - Yfirlit (PDF, 37 MB)
- Austurhluti - Yfirlit (PDF, 29 MB)
- Eiðisgrandi - Hringbraut (PDF, 1.1 MB)
- Hringbraut (PDF, 1.3 MB)
- Hringbraut - Miklabraut (PDF, 1.9 MB)
- Miklabraut (PDF, 1.8 MB)
- Miklabraut (PDF, 1.9 MB)
- Eiðisgrandi - Ánanaust - Mýrargata (PDF, 1.2 MB)
- Mýrargata - Geirsgata - Kalkofnsvegur (PDF, 1.7 MB)
- Sæbraut - Kringlumýrarbraut (PDF, 1 MB)
- Sæbraut (PDF, 1 MB)
- Sæbraut (PDF, 1.3 MB)
- Sæbraut - Reykjanesbraut (PDF, 1.7 MB)
- Kringlumýrarbraut (PDF, 1.5 MB)
- Kringlumýrarbraut (PDF, 1.6 MB)
- Kringlumýrarbraut (PDF, 1.9 MB)
- Kringlumýrarbraut (PDF, 1.5 MB)
- Ártúnsholt - Vesturlandsvegur - Reykjanesbraut (PDF, 1.2 MB)
- Reykjanesbraut (PDF, 1 MB)
- Breiðholtsbraut (PDF, 1.4 MB)
- Breiðholtsbraut (PDF, 900 KB)
- Breiðholtsbraut (PDF, 750 KB)
- Árbær - Breiðholt - Suðurlandsvegur (PDF, 1.4 MB)
- Vesturlandsvegur - Suðurlandsvegur (PDF, 1.2 MB)
- Gullinbrú (PDF, 1 MB)
- Gullinbrú - Strandvegur - Folda- og Rimahverfi (PDF, 1.5 MB)
- Strandvegur - Borgarvegur - Rima- og Engjahverfi (PDF, 1.3 MB)
- Víkurvegur - Vesturlandsvegur (PDF, 660 KB)
- Grafarholt - Vesturlandsvegur (PDF, 1.3 MB)
- Ln
- Vesturhluti - Yfirlit (PDF, MB)
- Austurhluti - Yfirlit (PDF, MB)
- Eiðisgrandi - Hringbraut (PDF, 1.8 MB)
- Hringbraut (PDF, 2.2 MB)
- Hringbraut - Miklabraut (PDF, 2.8 MB)
- Miklabraut (PDF, 3.3 MB)
- Miklabraut (PDF, 2.8 MB)
- Eiðisgrandi - Ánanaust - Mýrargata (PDF, 2.3 MB)
- Mýrargata - Geirsgata - Kalkofnsvegur (PDF, 2.8 MB)
- Sæbraut - Kringlumýrarbraut (PDF, 1.5 MB)
- Sæbraut (PDF, 1.2 MB)
- Sæbraut (PDF, 1.8 MB)
- Sæbraut - Reykjanesbraut (PDF, 2.2 MB)
- Kringlumýrarbraut (PDF, 2.1 MB)
- Kringlumýrarbraut (PDF, 2.8 MB)
- Kringlumýrarbraut (PDF, 3 MB)
- Kringlumýrarbraut (PDF, 2 MB)
- Ártúnsholt - Vesturlandsvegur - Reykjanesbraut (PDF, 1.5 MB)
- Reykjanesbraut (PDF, 1.4 MB)
- Breiðholtsbraut (PDF, 1.6 MB)
- Breiðholtsbraut (PDF, 1 MB)
- Breiðholtsbraut (PDF, 1 MB)
- Árbær - Breiðholt - Suðurlandsvegur (PDF, 1.7 MB)
- Vesturlandsvegur - Suðurlandsvegur (PDF, 1.7 MB)
- Gullinbrú (PDF, 1.2 MB)
- Gullinbrú - Strandvegur - Folda- og Rimahverfi (PDF, 1.7 MB)
- Strandvegur - Borgarvegur - Rima- og Engjahverfi (PDF, 1.5 MB)
- Víkurvegur - Vesturlandsvegur (PDF, 900 KB)
- Grafarholt - Vesturlandsvegur (PDF, 1.5 MB)
Mosfellsbær
- Lden
- Yfirlit (PDF, 1.5 MB)
- Skarhólabraut (PDF, 800 KB)
- Hlíðar og Holt (PDF, 1.8 MB)
- Varmá (PDF, 1.2 MB)
- Reykjavegur (PDF, 600 KB)
- Ln
- Yfirlit (PDF, 5.8 MB)
- Skarhólabraut (PDF, 11 MB)
- Hlíðar og Holt (PDF, 5.2 MB)
- Varmá (PDF, 3.5 MB)
- Reykjavegur (PDF, 2.1 MB)
Kópavogur
- Lden
- Yfirlitsmynd (PDF, 2.5 MB)
- Hafnarfjarðarvegur - Norðurhluti (PDF, 924 KB)
- Hafnarfjarðarvegur - Suðurhluti (PDF, 828 KB)
- Reykjanesbraut - Norðurhluti (PDF, 946 KB)
- Reykjanesbraut - Suðurhluti (PDF, 1 MB)
- Nýbýlavegur (PDF, 952 KB)
- Fífuhvammsvegur - Arnarnesvegur (PDF, 795 KB)
- Arnarnesvegur - Fífuhvammsvegur (PDF, 634 KB)
- Endurvinnslustöð Sorpu (PDF, 307 KB)
- Ln
- Yfirlitsmynd (PDF, 2.9 MB)
- Hafnarfjarðarvegur - Norðurhluti (PDF, 1.1 MB)
- Hafnarfjarðarvegur - Suðurhluti (PDF, 1.2 MB)
- Reykjanesbraut - Norðurhluti (PDF, 1.2 MB)
- Reykjanesbraut - Suðurhluti (PDF, 1.4 MB)
- Nýbýlavegur (PDF, 1.2 MB)
- Fífuhvammsvegur - Arnarnesvegur (PDF, 926 KB)
- Arnarnesvegur - Fífuhvammsvegur (PDF, 826 KB)
Garðabær
- Lden
- Yfirlitsmynd (PDF, 3.7 MB)
- Hafnarfjarðarvegur - Norðurhluti (PDF, 1.5 MB)
- Hafnarfjarðarvegur - Suðurhluti (PDF, 1.6 MB)
- Reykjanesbraut - Norðurhluti (PDF, 1.6 KB)
- Reykjanesbraut - Suðurhluti (PDF, 933 KB)
- Ln
- Yfirlitsmynd (PDF, 4.5 MB)
- Hafnarfjarðarvegur - Norðurhluti (PDF, 2.1 MB)
- Hafnarfjarðarvegur - Suðurhluti (PDF, 2.2 MB)
- Reykjanesbraut - Norðurhluti (PDF, 2.1 MB)
- Reykjanesbraut - Suðurhluti (PDF, 1.4 MB)
Hafnarfjörður
- Lden
- Yfirlitsmynd (PDF, 4.2 MB)
- Vellir - Strandgata (PDF, 1.6 MB)
- Kaldárselsvegur - Lækjargata (PDF, 2.5 MB)
- Lækjarskóli (PDF, 2.7 MB)
- Hraun (PDF, 1.2 MB)
- Hafnarfjarðarhöfn (PDF, 2.9 MB)
- Ln
- Yfirlitsmynd (PDF, 4.5 MB)
- Vellir - Strandgata (PDF, 1.5 MB)
- Kaldárselsvegur - Lækjargata (PDF, 2 MB)
- Lækjarskóli (PDF, 2.2 MB)
- Hraun (PDF, 1.4 MB)
- Hafnarfjarðarhöfn (PDF, 3.5 MB)
Reykjanesbær
- Yfirlitsmynd (Lden og Ln, PDF, 111 MB)
Selfoss
- Yfirlitsmynd (Lden og Ln, PDF, 28 MB)
Akureyri
- Yfirlitsmynd (Lden og Ln, PDF, 17 MB)
Þéttbýlissvæði
Reykjavík
- Lden
- Vesturhluti - Yfirlit (PDF, 37 MB)
- Austurhluti - Yfirlit (PDF, 29 MB)
- Eiðisgrandi - Hringbraut (PDF, 1.1 MB)
- Hringbraut (PDF, 1.3 MB)
- Hringbraut - Miklabraut (PDF, 1.9 MB)
- Miklabraut (PDF, 1.8 MB)
- Miklabraut (PDF, 1.9 MB)
- Eiðisgrandi - Ánanaust - Mýrargata (PDF, 1.2 MB)
- Mýrargata - Geirsgata - Kalkofnsvegur (PDF, 1.7 MB)
- Sæbraut - Kringlumýrarbraut (PDF, 1 MB)
- Sæbraut (PDF, 1 MB)
- Sæbraut (PDF, 1.3 MB)
- Sæbraut - Reykjanesbraut (PDF, 1.7 MB)
- Kringlumýrarbraut (PDF, 1.5 MB)
- Kringlumýrarbraut (PDF, 1.6 MB)
- Kringlumýrarbraut (PDF, 1.9 MB)
- Kringlumýrarbraut (PDF, 1.5 MB)
- Ártúnsholt - Vesturlandsvegur - Reykjanesbraut (PDF, 1.2 MB)
- Reykjanesbraut (PDF, 1 MB)
- Breiðholtsbraut (PDF, 1.4 MB)
- Breiðholtsbraut (PDF, 900 KB)
- Breiðholtsbraut (PDF, 750 KB)
- Árbær - Breiðholt - Suðurlandsvegur (PDF, 1.4 MB)
- Vesturlandsvegur - Suðurlandsvegur (PDF, 1.2 MB)
- Gullinbrú (PDF, 1 MB)
- Gullinbrú - Strandvegur - Folda- og Rimahverfi (PDF, 1.5 MB)
- Strandvegur - Borgarvegur - Rima- og Engjahverfi (PDF, 1.3 MB)
- Víkurvegur - Vesturlandsvegur (PDF, 660 KB)
- Grafarholt - Vesturlandsvegur (PDF, 1.3 MB)
- Ln
- Vesturhluti - Yfirlit (PDF, MB)
- Austurhluti - Yfirlit (PDF, MB)
- Eiðisgrandi - Hringbraut (PDF, 1.8 MB)
- Hringbraut (PDF, 2.2 MB)
- Hringbraut - Miklabraut (PDF, 2.8 MB)
- Miklabraut (PDF, 3.3 MB)
- Miklabraut (PDF, 2.8 MB)
- Eiðisgrandi - Ánanaust - Mýrargata (PDF, 2.3 MB)
- Mýrargata - Geirsgata - Kalkofnsvegur (PDF, 2.8 MB)
- Sæbraut - Kringlumýrarbraut (PDF, 1.5 MB)
- Sæbraut (PDF, 1.2 MB)
- Sæbraut (PDF, 1.8 MB)
- Sæbraut - Reykjanesbraut (PDF, 2.2 MB)
- Kringlumýrarbraut (PDF, 2.1 MB)
- Kringlumýrarbraut (PDF, 2.8 MB)
- Kringlumýrarbraut (PDF, 3 MB)
- Kringlumýrarbraut (PDF, 2 MB)
- Ártúnsholt - Vesturlandsvegur - Reykjanesbraut (PDF, 1.5 MB)
- Reykjanesbraut (PDF, 1.4 MB)
- Breiðholtsbraut (PDF, 1.6 MB)
- Breiðholtsbraut (PDF, 1 MB)
- Breiðholtsbraut (PDF, 1 MB)
- Árbær - Breiðholt - Suðurlandsvegur (PDF, 1.7 MB)
- Vesturlandsvegur - Suðurlandsvegur (PDF, 1.7 MB)
- Gullinbrú (PDF, 1.2 MB)
- Gullinbrú - Strandvegur - Folda- og Rimahverfi (PDF, 1.7 MB)
- Strandvegur - Borgarvegur - Rima- og Engjahverfi (PDF, 1.5 MB)
- Víkurvegur - Vesturlandsvegur (PDF, 900 KB)
- Grafarholt - Vesturlandsvegur (PDF, 1.5 MB)
Seltjarnarnes
Kópavogur
- Lden
- Yfirlitsmynd (PDF, 2.5 MB)
- Hafnarfjarðarvegur - Norðurhluti (PDF, 924 KB)
- Hafnarfjarðarvegur - Suðurhluti (PDF, 828 KB)
- Reykjanesbraut - Norðurhluti (PDF, 946 KB)
- Reykjanesbraut - Suðurhluti (PDF, 1 MB)
- Nýbýlavegur (PDF, 952 KB)
- Fífuhvammsvegur - Arnarnesvegur (PDF, 795 KB)
- Arnarnesvegur - Fífuhvammsvegur (PDF, 634 KB)
- Endurvinnslustöð Sorpu (PDF, 307 KB)
- Ln
- Yfirlitsmynd (PDF, 2.9 MB)
- Hafnarfjarðarvegur - Norðurhluti (PDF, 1.1 MB)
- Hafnarfjarðarvegur - Suðurhluti (PDF, 1.2 MB)
- Reykjanesbraut - Norðurhluti (PDF, 1.2 MB)
- Reykjanesbraut - Suðurhluti (PDF, 1.4 MB)
- Nýbýlavegur (PDF, 1.2 MB)
- Fífuhvammsvegur - Arnarnesvegur (PDF, 926 KB)
- Arnarnesvegur - Fífuhvammsvegur (PDF, 826 KB)
Garðabær
- Lden
- Yfirlitsmynd (PDF, 3.7 MB)
- Hafnarfjarðarvegur - Norðurhluti (PDF, 1.5 MB)
- Hafnarfjarðarvegur - Suðurhluti (PDF, 1.6 MB)
- Reykjanesbraut - Norðurhluti (PDF, 1.6 KB)
- Reykjanesbraut - Suðurhluti (PDF, 933 KB)
- Ln
- Yfirlitsmynd (PDF, 4.5 MB)
- Hafnarfjarðarvegur - Norðurhluti (PDF, 2.1 MB)
- Hafnarfjarðarvegur - Suðurhluti (PDF, 2.2 MB)
- Reykjanesbraut - Norðurhluti (PDF, 2.1 MB)
- Reykjanesbraut - Suðurhluti (PDF, 1.4 MB)
Hafnarfjörður
- Lden
- Yfirlitsmynd (PDF, 4.2 MB)
- Vellir - Strandgata (PDF, 1.6 MB)
- Kaldárselsvegur - Lækjargata (PDF, 2.5 MB)
- Lækjarskóli (PDF, 2.7 MB)
- Hraun (PDF, 1.2 MB)
- Hafnarfjarðarhöfn (PDF, 2.9 MB)
- Ln
- Yfirlitsmynd (PDF, 4.5 MB)
- Vellir - Strandgata (PDF, 1.5 MB)
- Kaldárselsvegur - Lækjargata (PDF, 2 MB)
- Lækjarskóli (PDF, 2.2 MB)
- Hraun (PDF, 1.4 MB)
- Hafnarfjarðarhöfn (PDF, 3.5 MB)




