Heimilið

Inni á heimilum má finna ýmis varasöm efni sem geta verið bæði í byggingunni sjálfri og þeim vörum sem við berum þangað inn. Hér má nefna stíflueyða og ýmis þvotta- og hreinsiefni en röng meðhöndlum á slíkum vörum getur haft alvarlegar afleiðingar. Einnig eru ýmis efni í neytendavörum sem eru talin geta í litlu magni og á löngum tíma haft skaðleg áhrif á bæði heilsu og umhverfi. Hér er t.d. átt við efni í snyrtivörum , raftækjum og húsgögnum. Þá geta raki og mygla í húsnæði haft slæm áhrif á heilsu heimilisfólksins. Allt hefur þetta áhrif á inniloftiðsem við öndum að okkur og því er afar mikilvægt beita öllum ráðum til að tryggja að gæði þess. Hávaði er enn einn umhverfisþáttur sem getur verið okkur til ama innan veggja heimilsins, kynntu þér hvað hægt er að gera til að draga úr hávaða.
Einn liður í því að koma í veg fyrir eitranir er að þekkja hættumerki sem eru á umbúðum ýmissa efnavara. Þú getur kynnt þér málið á Lærðu að þekkja merkin!

EndurvinnslaÖll neysla veldur úrgangi en úrgangur er ekkert annað en afgangshráefni, eitthvað sem við getum ekki nýtt eða sem við kjósum að nota ekki.
Nánar


RafmagnsvörurÞví miður þá geta rafmagnstæki innihaldið ýmis efni sem geta verið hættuleg heilsu okkar og umhverfi.
Nánar
Skólavörur vert er að hafa í huga að stundum geta skólavörur innihaldið efni sem eru skaðleg börnum undir vissum kringumstæðum.
Nánar
Þvotta- og hreinsivörurÞvottaefni fyrir fatnað o.þ.h. eru gerð úr mörgum mismunandi efnum sem geta valdið ofnæmi.
Nánar




