Losun Íslands
Rammasamningur SÞ um loftslagsbreytingar kveður á um að aðildarríki skuli halda losunarbókhald. Megintilgangur bókhaldsins er að fylgjast með losun gróðurhúsalofttegunda út í andrúmsloftið. Metin er heildarlosun og einnig binding lofttegunda sem taldar eru mikilvægar með tilliti til loftslagsbreytinga af mannavöldum. Bókhaldið þarf að vera ítarlegt og samanburðarhæft milli landa. Til þess að aðstoða aðildarríkin við að uppfylla þessar kröfur hefur vísindanefnd um loftslagsbreytingar IPCC (Intergovernmental Panel on Climate Change) gefið út viðmiðunarreglur fyrir útreikningana.
Losun gróðurhúsalofttegunda
Samkvæmt viðmiðunarreglunum er útstreymi góðurhúsalofttegunda skipt upp í sex aðalflokka eftir uppsprettum
- Orka: Losun vegna orkunotkunar, sérstaklega eldsneytisbrennslu. Í þessum flokki eru meðal annars losun vegna rafmagns- og hitaveitna, samgangna, fiskiskipa og eldsneytisbrennslu í iðnaði.
- Iðnaðarferlar: Losun vegna iðnaðarferla, bæði gróðurhúsalofttegundir sem myndast sem aukaafurðir í ferlinu og gróðurhúsalofttegundir sem ná að sleppa út í andrúmsloftið . Sé jarðefnaeldsneyti (t.d. kol eða koks) notað í iðnaði fyrst og fremst vegna efnafræðilegra eiginleika (t.d. sem afoxunarefni) er útstreymið talið fram undir iðnaðarferlum; sé hins vegar verið að nýta það sem orkugjafa er losunin flokkuð sem orkunotkun.
- Efna- og vörunotkun: Aðallega losun NMVOC (non-methane volatile organic compounds) vegna notkunar leysiefna og annarra vara sem innihalda leysiefni. Einnig fellur hér undir notkun glaðlofts t.d. í læknisfræðilegum tilgangi.
- Landbúnaður: Losun vegna metangerjunar í meltingarfærum húsdýra, meðhöndlunar og notkunar húsdýraskíts (húsdýraáburðar) og notkunar tilbúins áburðar. Losun vegna eldsneytisnotkunar í landbúnaði (á tæki) er talið fram í orkugeiranum.
- Landnotkun, breytt landnotkun og skógrækt (LULUCF - Land use, land use change and forestry): Hér undir fellur losun GHL sem verður vegna landnotkunar og breyttrar landnotkunar, t.d. skógrækt, landgræðsla, beitarstjórnun, framræsla mýra og losun vegna uppistöðulóna.
- Úrgangur: Losun vegna meðhöndlunar fráveituvatns og urðunar og brennslu úrgangs.
Umhverfisstofnun sér um að færa bókhald um losun gróðurhúsalofttegunda frá öllum uppsprettum nema frá landnoktun og skógrækt en sá flokkur er í umsjón Landbúnaðarháskóla Íslands.
Upplýsingar úr losunarbókhaldi
Upplýsingum um útstreymi gróðurhúsalofttegunda er skilað árlega til skrifstofu Loftlagssamningins. Upplýsingar um aðferðafræði og niðurstöður koma fram í sérstakri skýrslu (National Inventory Report) en niðurstöður bókhaldsins, frá 1990, er að finna heimasíðu Loftlagssamningsins.
Heildarútstreymi gróðurhúsalofttegunda (án LULUCF) árið 2010 var 4.542.000 tonn koldíoxið-ígildi. Árið 1990 var útstreymið 3.501.000 tonn og hefur losun gróðurhúsalofttegunda því aukist um 30% á þessu tímabili. Árið 2008 var heildarútstreymið 4.959.000 tonn og minnkaði því losunin um 8% milli áranna 2008 og 2010.
Losun gróðurhúsalofttegunda frá 1990 til 2010 í CO2-ígildum (þúsund tonn).
| 1990 | 1995 | 2000 | 2005 | 2008 | 2009 | 2010 | |
| Rafmagn og hiti | 118 | 130 | 190 | 146 | 208 | 205 | 213 |
| Samgöngur | 621 | 628 | 674 | 849 | 973 | 946 | 900 |
| Sjávarútvegur | 789 | 930 | 840 | 726 | 587 | 650 | 580 |
| Iðnaður/efnanotkun | 1122 | 766 | 1283 | 1266 | 2286 | 2022 | 1989 |
| Landbúnaður | 703 | 636 | 653 | 610 | 679 | 654 | 646 |
| Úrgangur | 148 | 184 | 205 | 223 | 226 | 224 | 214 |
| Samtals | 3501 | 3274 | 3845 | 3819 | 4959 | 4700 | 4542 |
Á íslensku
- Spá um losun gróðurhúsalofttegunda 2008-2012
- Stefnumörkun ríkisstjórnarinnar í loftslagsmálum 2007
- Ísland gerðist aðili að Kyotobókuninni 23. maí 2002
- Veðurfarsbreytingar og afleiðingar þeirra - skýrsla vísndanefndar um loftslagsbreytingar
- Upplýsingar um Rammasamning SÞ um loftslagsmál
- Niðurstöður sérfræðinganefndar umhverfisráðuneytisins um möguleika til að draga úr nettóútstreymi gróðurhúsalofttegunda á Íslandi
Á ensku
- National Inventory Report 2013
- National Inventory Report 2012
- National Inventory Report 2011
- National Inventory Report 2010
- National Inventory Report 2009
- National Inventory Report 2008
- National Inventory Report 2007
- National Inventory Report 2006
- National Inventory Report 2005
- National Inventory Report 2004
- Iceland QAQC plan
- Iceland QAQC manual
- Initial Report under the Kyoto Protocol
- Fimmta stöðuskýrsla Íslands í loftslagsmálum




