Á Vestfjörðum

Gengið með landvörðum sumarið 2023 - Frítt að taka þátt

Sunnanverðir Vestfirðir

Júlí

Surtarbrandsgil
Sýning um Surtarbrandsgil í gamla prestbústaðnum á Brjánslæk er opin daglega á tímabilinu 12. júní – 12. ágúst. Í tengslum við opnunartíma sýningarinnar er boðið upp á göngur í fylgd landvarðar í gilið alla þriðjudaga, miðvikudaga, fimmtudaga, laugardaga og sunnudaga klukkan 13:00. 

Vatnsfjörður 

1.júlí kl: 13:00 (laugardagur)  Fossaganga í Vatnsdal 
Laugardaginn 1. júlí kl: 13:00 mun landvörður í friðlandinu Vatnsfirði leiða fossagöngu í Vatnsdal. Þar er fjöld fagurra fossa sem þáttakendur munu þræða á göngu sinni um dalinn. Gengið verður um grösugar flatir, í þéttum birkiskógi og á gljúfurbökkum. Þátttakendur hittast á bílastæði við Lómatjarnir við Vatnsdalsvatn þar sem sameinast verður í bíla áður en keyrt er inn í Vatnsdal. Gangan hefst við bílastæði í botni dalsins. 

Vegalengd: 6 km
Hækkun: óveruleg
Tími: 3 klst
Búnaður: góðir skór, fatnaður eftir veðri og nesti. 

Vatnsfjörður

7. júlí kl: 13:00 (laugardagur) – Gíslasöguganga í Geirþjófsfjörð. 
Laugardaginn 7. júlí mun landvörður í Vatnsfirði leiða Gísla-sögugöngu í Geirþjófsfjörð. Gangan hefst á Dynjandisheiði undir fjallinu Hesti.  Gengið verður frá Dynjandisheiði, áningastæði við þjóðveg undir fjallinu Hesti, sem leið liggur ofan í Geirþjófsfjörð. Þátttakendur munu fræðast um Gísla-sögu Súrssonar en Auður Vésteinsdóttir, kona hans, bjó í Geirþjófsfirði á meðan á útlegð Gísla stóð og þar féll hann fyrir mönnum Barkar digra samkvæmt sögunni. Náttúran, kyrrðin og fegurðin í eyðifirðinum Geirþjófsfirði er rómuð en þangað liggja engir vegir. Landvörður bíður við fjallið Hest á merktum bíl rétt fyrir klukkan 13:00 á tilsettum degi og aðstoðar þátttakendur við að koma bílum sínum fyrir fyrir gönguna.  

Vegalengd: 4-5 km
Hækkun: 300 m
Tími: 3 klst
Búnaður: góðir skór, fatnaður eftir veðri og nesti 

Vatnsfjörður

14. júlí kl: 15:00 (föstudagur)– Ganga á Lónfell með landverði. 
Föstudaginn 14. júlí klukkan 15:00 mun landvörður í friðlandinu Vatnsfirði leiða fræðslugöngu á Lónfell. Farið verður frá bílastæði á Dynjandisheiði, rétt norðan Þverdalsvatns.  
Fjallið Lónfell er stundum nefnt skírnarfontur Íslands þar sem leiddar hafa verið líkur að því að hér sé komið fjallið hvaðan Hrafna-Flóki horfði þegar hann nefndi landið Ísland svo sem segir í Landnámu. Fleiri fjöll hafa þó verið kölluð til og sýnist sitt hverjum. Það sama má segja um örnefnið Lónfell. Heitir fjallið kannski Lómfell? Útsýnið er stórkostlegt, um það eru allir sammála. 

Vegalengd: 5-6 km
Hækkun: 300 m
Tími: 4 klst.
Búnaður: Góðir skór, fatnaður eftir veðri og nesti. Gaman að hafa sjónauka. 

Látrabjarg 

22. júlí kl: 13:00 (laugardagur) – Bjargtangar – lífsbarátta fuglanna í Látrabjargi. 
Laugardaginn 22. júlí kl: 13:00 býður landvörður á Látrabjargi áhugasömum í stutta fræðslugöngu á Bjargtöngum þar sem fjallað verður um fuglana sem hreiðra um sig í bjarginu á sumrin og lifnaðarhætti þeirra. Látrabjarg er gjarnan talið stærsta fuglabjarg í Evrópu. 
Gangan hefst við vitann á Bjargtöngum en þaðan verður gengið áleiðs upp eftir brún bjargsins og þátttakendum gefst færi á að hlýða á landvörð og spyrja hann spurninga. 
Nausynlegt er að búa sig eftir veðri og vera sæmilega skóaður, ekki er verra að taka með sér kíki og landvörður verður með handbækur í för sem dregnar verða fram ef veður hangir þurrt. Áætlað er að ganga taki rúma klukkustund og hún er tiltölulega auðveld og flestum fær þó bjargið sé aðeins á fótinn. 

Vegalengd: 1 km
Tími: 1 klst
Búnaður: fatnaður eftir veðri

Ágúst

Surtarbrandsgil

Sýning um Surtarbrandsgil í gamla prestbústaðnum á Brjánslæk er opin daglega á tímabilinu 12. júní – 12. ágúst. Í tengslum við opnunartíma sýningarinnar er boðið upp á göngur í fylgd landvarðar í gilið alla þriðjudaga, miðvikudaga, fimmtudaga, laugardaga og sunnudaga klukkan 13:00. 

Vatnsfjörður

5. ágúst kl: 15:00 (laugardagur) - Jarðsaga svæðis - Hörgsnes. 
Laugardaginn 5. ágúst mun landvörður í friðlandinu Vatnsfirði leiða fræðslugöngu á Hörgsnesi. Gangan verður farin í beinu framhaldi af göngu í Surtarbrandsgil þennan dag en gestir þurfa þó ekki að mæta í báðar göngur samhengisins vegna. Rýnt verður í jarðsögu svæðisin þar sem Hörgsnes skartar m.a. digrum klettum, vel sniðnum trjábolaförum og stórkostlegu útsýni yfir Vatnsfjörð og Breiðafjörð. Hvernig verður svona landslag til?
Gangan hefst við bílastæðið á Hörgsnesi og tekur um eina klukkustund. Hörgsnes er á suðvestanverður Hjarðarnesi við eystri mörk friðlandsins. 
 
Vegalengd: 500-700 m
Hækkun: óveruleg
Tími: 1 – 1,5 klst
Búnaður: Góðir skór og fatnaður eftir veðri. Gaman að hafa sjónauka. 

Vatnsfjörður

12. ágúst kl: 13:00 (laugardagur)- Ganga á Lónfell með landverði.
Laugardaginn 12. ágúst klukkan 13:00 mun landvörður í friðlandinu Vatnsfirði leiða fræðslugöngu á Lónfell. Farið verður frá bílastæði á Dynjandisheiði, rétt norðan Þverdalsvatns.  
Fjallið Lónfell er stundum nefnt skírnarfontur Íslands þar sem leiddar hafa verið líkur að því að hér sé komið fjallið hvaðan Hrafna-Flóki horfði þegar hann nefndi landið Ísland svo sem segir í Landnámu. Fleiri fjöll hafa þó verið kölluð til og sýnist sitt hverjum. Það sama má segja um örnefnið Lónfell. Heitir fjallið kannski Lómfell? Útsýnið er stórkostlegt, um það eru allir sammála. 

Vegalengd: 5-6 km
Hækkun: 300 m
Tími: 4 klst.
Búnaður: Góðir skór, fatnaður eftir veðri og nesti. Gaman að hafa sjónauka.

Látrabjarg

13. ágúst kl: 13:00 (sunnudagur) - Geldingsskorardalur og strand togarans Dhoon. (Ísak). 
Sunnudaginn 13. ágúst klukkan 13:00 mun landvörður á Látrabjargi leiða göngu frá bílastæðinu við Geldingsskorardal að bjargbrún og fræða áhugasama um strand togarans Dhoon í desember 1947 og hið stórkostlega björgunarafrek sem fylgdi. 
Þeir sem vilja geta gengið lengra og endað göngu sína á Bjargtöngum. Ef þátttakendur vilja skilja bíl eftir á Bjargtöngum og fá far með landverði að Geldingsskorardal fyrir gönguna má hafa samband í síma 822-4091 (Ísak) með góðum fyrirvara. 

Vegalengd: 2 km
Tími: 1-2 klst. 
Búnaður: Fatnaður eftir veðri

Nánari leiðbeiningar: til að komast að bílastæðinu við Geldingsskorar dal er beygt í átt að Keflavík af Látraheiði. Keyrt er sem leið liggur í átt að Keflavík ca. 4 km leið þar til komið er að vegvísi sem leiðir að Geldingsskorardal. Sá vegur er keyrður á enda og þar mun landvörður bíða gesta klukkan 13:00 á tilsettum degi. 

Vatnsfjörður

19. ágúst kl: 10:00 (laugardagur) Fossaganga í friðlandinu Vatnsfirði 
Laugardaginn 19. ágúst kl: 10:00 mun landvörður í friðlandinu Vatnsfirði leiða fossagöngu í Vatnsdal. Þar er fjöld fagurra fossa sem þáttakendur munu þræða á göngu sinni um dalinn. Gengið verður um grösugar flatir, í þéttum birkiskógi og á gljúfurbökkum. Þátttakendur hittast á bílastæði við Lómatjarnir við Vatnsdalsvatn þar sem sameinast verður í bíla áður en keyrt er inn í Vatnsdal. Gangan hefst við bílastæði í botni dalsins. 

Vegalengd: 6 km
Hækkun: óveruleg
Tími: 3 klst
Búnaður: góðir skór, fatnaður eftir veðri og nesti. 

Vatnsfjörður

26. ágúst kl: 13:00 (laugardagur) – Ganga á Ýsufell með landverði (Einir)
Laugardaginn 26. ágúst kl: 13:00 mun landvörður í friðlandinu Vatnsfirði leiða fræðslugöngu á Ýsufell. Mæting er á bílastæði á Dynjandisheiði milli Þverdalsvatns og Helluskarðs. Ýsufell er 703 m hátt og rí s upp af Helluskarði, nyrst Hornatáa. Gengið er úr Helluskarði en það er í 468 m hæð. Gönguleiðin er grýtt en á flestra færi.

Vegalengd: um 3,5 km
Hækkun: 240 m
Tími: um 3 klst.
Búnaður: góðir skór, fatnaður eftir veðri og nesti.