Stök frétt

Umhverfisstofnun hefur unnið tillögu að starfsleyfi fyrir starfsemi Íslenska gámafélagsins ehf. í Hellislandi, Selfossi. Samkvæmt tillögunni verður heimilt að taka á móti allt að 15 þúsund tonnum af úrgangi til meðhöndlunar á ári. Samkvæmt tillögunni verður gildistími starfsleyfis til næstu sextán ára. Tillagan, ásamt starfsleyfisumsókn og fylgigögnum, mun liggja frammi til kynningar í afgreiðslu Ráðhúss Árborgar, Austurvegi 2, Selfossi, til 1. ágúst 2012. Starfsleyfistillögu og önnur gögn má einnig nálgast á heimasíðu Umhverfisstofnunar. Öllum er frjálst að gera athugasemdir við starfsleyfistillöguna en þær skulu vera skriflegar, undirritaðar með nafni og heimilisfangi og sendar Umhverfisstofnun. Frestur til að skila inn athugasemdum er til 1. ágúst 2012.

 

Tengd skjöl