Stök frétt

Á hverju ári halda landverðir um allan heim upp á alþjóðadag landvarða sem er 31. júlí. Þessi dagur er fyrst og fremst til að minnast þeirra mörgu landvarða sem hafa látist eða slasast við skyldustörf. Á sl. 12 mánuðum hafa 105 landverðir látið lífið við störf sem snúa að verndun náttúru og dýralífs. Flestir þeirra eru frá Afríku og Asíu þar sem landverðir eiga m.a. í stríði við veiðiþjófa og skógarhöggsmenn. En einnig er þessi dagur haldinn hátíðlegur til að fagna störfum landvarða um allan heim sem leggja sig alla fram við að vernda náttúru- og menningarleg verðmæti heimsins.

Landverðir Íslands ætla að fagna þessum degi mánudaginn 31. júlí víða um land og bjóða gestum friðlýstra svæða í fræðslugöngur til að kynna störf landvarða. Gestir eru hvattir til að klæða sig eftir veðri, vera í góðum skóm og taka með sér nesti.

Skaftárhreppur

Landverðir Umhverfisstofnunar og Vatnajökulsþjóðgarðs bjóða upp á þrjár gönguferðir í tilefni dagsins.

  • Nunnur og tíminn í landslagi: Lagt af stað frá Skaftárstofu á Kirkjubæjarklaustri kl. 9:00. Um einnar klukkustundar ganga undir leiðsögn Guðbjargar Runólfsdóttur.
  • Náttúruvættið Dverghamrar: Lagt af stað frá bílastæðinu við Dverghamra kl. 11:00. Um 1 klst. fræðsluganga um náttúru svæðisins undir leiðsögn Ástu Kristínar og Þuríðar Helgu.
  • Ástarbrautin upp með Systrafossum að náttúruvættinu Kirkjugólfi. Lagt af stað frá Skaftárstofu á Kirkjubæjarklaustri kl. 18:00. Um 2 klst. miðlungs erfið ganga þar sem gestir verða fræddir um störf landvarða, náttúru, sögu og blómin undir leiðsögn Ástu Kristínar og Jónu Bjarkar.

Mýrdalshreppur

  • Friðlandið Dyrhólaey: Lagt af stað frá bílastæðinu á Lágey kl. 14:00. Um 2 klst. miðlungs erfið ganga þar sem gestir verða fræddir um náttúru, sögu og störf landvarða undir leiðsögn Hákonar Ásgeirssonar og Helgu Hvanndal.

Rangárþing Ytra

  • Friðland að Fjallabaki: Lagt af stað frá skála Ferðafélags Íslands í Landmannalaugum kl. 13:00. Um 2 klst. miðlungs erfið ganga þar sem genginn verður Laugahringurinn og gestir fræddir um náttúru svæðisins og störf landvarða. Einnig mun gestum gefast tækifæri til að leggja sitt af mörkum í verndun svæðisins. Leiðsögumenn verða landverðirnir Hringur, Kristín og Valdimar.

Vesturbyggð

  • Friðland í Vatnsfirði: Lagt af stað frá Hótel Flókalundi kl. 10:00 þar sem sameinast verður í bíla. Um 4 klst. miðlungs erfið ganga þar sem gengið verður í Lambagil. Gestum gefst tækifæri að gerast landvörður í einn dag með því að taka þátt í að laga göngustikur og grisja leiðina í gegnum skóginn. Leiðsögumenn verða landverðirnir Kristín Edda og Ragnhildur Helga.

 Landverðir hlakka til að verja deginum með ykkur.

(Myndin er af landvörðum Umhverfisstofnunar og sjálfboðaliðum á Fjallabaki)