Stök frétt

Umhverfisstofnun hefur gefið út starfsleyfi fyrir landeldi Arctic Smolt hf. til framleiðslu á allt að 1.000 tonnum af laxa- og regnbogasilunaseiðum á ári að Norður-Botni Tálknafirði.

Starfsleyfið byggir á skilyrðum á grundvelli reglugerðar nr. 550/2018 um losun frá atvinnurekstri og mengunarvarnareftirlit sem sett er með stoð í 5. gr. laga nr. 7/1998, um hollustuhætti og mengunarvarnir, sbr. 1. mgr. 6. gr. laga nr. 7/1998. Starfsleyfi Umhverfisstofnunar tekur á mengunarþætti eldisins og gerir ítarlegar kröfur um takmörkun á mengun, eftirlit og mælingar á starfstíma.

Umhverfisstofnun auglýsti tillögu að starfsleyfinu á vefsíðu stofnunarinnar þann 17. ágúst 2018  og var frestur til að skila inn athugasemdum til og með 17. september 2018. Tillagan var einnig auglýst á sama tíma á vefsíðu Tálknafjarðarhrepps. 

Áður en tillagan að starfsleyfinu var auglýst hafði heilbrigðisnefnd Vestfjarða verið boðið að kom að gerð tillögunnar með tölvupóst þann 9. ágúst 2018.
Umhverfisstofnun barst ein umsögn á auglýsingatíma og er gerð grein fyrir athugasemdum í greinargerð með starfsleyfinu í samræmi við 6.gr. rg. nr. 550/2018. Umhverfisstofnun sendi Matvælastofnun starfsleyfið eftir ákvörðun um útgáfu sbr. 4. gr. a laga nr. 71/2008, um fiskeldi, og skal afhent og birt umsækjanda. Starfsleyfið öðlaðist gildi við afhendingu Matvælastofnunar til rekstraraðila og gildir til 10. janúar 2035.

Auglýsing þessi er birt á fréttasvæði Umhverfisstofnunar en auk þess í sérstökum dálki fyrir opinberar birtingar á starfsleyfum sem stofnunin gefur út. 

Ákvörðun Umhverfisstofnunar um útgáfu starfsleyfis er kæranleg til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála innan eins mánaðar frá birtingu ákvörðunar Umhverfisstofnunar skv. 65. gr. laga nr. 7/1998, um hollustuhætti og mengunarvarnir, sbr. 4. gr. laga nr. 130/2011, um úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála.

Tengd skjöl:
Starfsleyfi ásamt greinargerð
Umsögn um starfsleyfi
Ákvörðun um matsskyldu