Stök frétt

Umhverfisstofnun hefur móttekið umsókn um nýtt starfsleyfi frá Steinullar hf. fyrir steinullarverksmiðju og moltugerð fyrirtækisins að Skarðseyri 5 á Sauðárkróki.

Unnið er úr umsókninni og að gerð starfsleyfistillögu.

Tillaga að starfsleyfi verður auglýst opinberlega þegar hún liggur fyrir og gefst þá öllum tækifæri að koma með athugasemdir áður en ákvörðun um útgáfu starfsleyfisins verður tekin.