Stök frétt

Mynd: National Cancer Institute frá Unsplash

Það er svo ótrúlega margt sem hægt er að gera, hér eru dæmi um hvar má byrja.

Veljum umhverfisvottaðar vörur


Hreinlætisvörur fyrir börn, s.s. rakakrem, sólarvörn, bossakrem, sápur, bleiur og blautþurrkur, er auðvelt að finna umhverfisvottaðar. Svansvottun tryggir að vörur innihaldi ekki ofnæmisvaldandi-, hormónaraskandi- eða önnur skaðleg efni.

   

Leikföng

  • Er lykt af leikfanginu?
  • Er leikfangið klístrað?
  • Er leikfangið framleitt utan Evrópu?

Ef svarið við einhverju af ofantöldu er já, inniheldur leikfangið mögulega skaðleg efni.

Mest áhætta er í mjúkum plastleikföngum og rafmagnsleikföngum en í þeim er algengt að finnist hormónaraskandi efni og þungmálmar í of miklu magni. Dæmi um slík leikföng eru boltar, leikfangadýr og dúkkur. Gott er að miða við allt plast sem er mýkra en LEGO-kubbar. Því eldra sem leikfangið er því líklegra er að það innihaldi skaðleg efni.

Gömul leikföng og hlutir

Varast skal að leyfa börnum að leika með gamla hluti, t.d. gömul plastveski, skó eða ódýra skartgripi og glingur. Best er að nota náttúruleg efni í búningaleik og horfa gagnrýnum augum á aukahluti.

Litir og leir

Vanda skal valið á pennum, litum og fingralitum og einnig andlitsmálningu og naglalakki sem allt getur innihaldið skaðleg efni þótt vörurnar séu markaðssettar sérstaklega fyrir börn. Sama má segja um leir og slím en slíkt má auðveldlega búa til heima úr matvælum og öðrum skaðlausum efnum.  

Hlutir sem ekki eru leikföng en leikið er með 

Börn eru gjarnan hrifin af tökkum og laðast að því sem fullorðnir nota mikið fyrir framan þau, svo sem síma, lyklaborð og myndavélar. Stundum fá börn að leika sér með þessa hluti, sem er slæm hugmynd þar sem plastefnin sem notuð eru í raftæki uppfylla ekki þær kröfur sem gerðar eru til plastefnis í barnaleikföngum.

 

Tengt efni: