Stök frétt

Mynd: Adam Jang - Unsplash
Vinnuhópur Norrænu ráðherranefndarinnar um hafið og strandsvæði veitir styrki til samnorrænna verkefna sem hafa það að markmiði að bæta umhverfi hafs og stranda. Grundvallarskilyrði fyrir styrkveitingu er að þrjú norræn lönd að minnsta kosti taki þátt í verkefninu og að það gagnist Norðurlöndunum. Í því sambandi eru sjálfstjórnarsvæðin þrjú, Færeyjar, Grænland og Álandseyjar, talin til norrænna landa. Þá getur Eystrasaltsríki komið í stað eins norræns ríkis. 

Opnað hefur verið fyrir styrkumsóknir vegna verkefna á árinu 2023 og er umsóknarfrestur til 24. maí nk. Markmið verkefna þarf að vera í samræmi við þær áherslur sem vinnuhópurinn um hafið og strandsvæði hefur sett fram fyrir árið 2023, en þær áherslur taka mið af norrænni samstarfsáætlun um umhverfis- og loftslagsmál 2019–2024.

Nánari upplýsingar um umsóknir og áherslur vinnuhópsins er að finna á heimasíðu Norrænu ráðherranefndarinnar: