Stök frétt

Nú er vor í lofti, snjóa leysir, frost er að fara úr jörðu og gróður vaknar til lífsins. Vorið er viðkvæmur tími hjá náttúrunni þar sem umferð um blaut svæði getur valdið raski á jarðvegi og gróðri. Það á ekki síst við um gönguleiðir og vegi sem eru ekki uppbyggðir. Skemmdir og rask hljótast iðulega af ótímabærri umferð og akstri þegar krækt er fyrir skafla og polla eða ekið á ótraustri snjóþekju.

Einnig er hætta á skemmdum á gróðri í og við áningarstaði og á gönguleiðum þar sem jarðvegur verður vatnsósa og gróður þolir engan átroðning. Jarðvegur getur orðið gljúpur. Hvert fótspor getur skilið eftir sig djúpt far og jafnvel varanlegar skemmdir.

Ferðamannastaðir á hálendinu eru sérstaklega viðkvæmir á þessum árstíma. Því er mjög mikilvægt að þau svæði fái frið fyrir allri umferð á meðan frost er að fara úr jörðu, jarðvegur að þorna og gróður að vakna til lífsins.

Vegagerðin er af þessum sökum byrjuð að loka vegum á hálendinu,  annars vegar til að koma í veg fyrir skemmdir á vegum og hins vegar  til verndar náttúrunni. Vegir 208 og F225 í Landmannalaugar eru nú lokaðir. Akstur inn á lokað svæði er óheimill samkvæmt lögum og varðar sektum.

Vegagerðin, Umhverfisstofnun og Vatnajökulsþjóðgarður eru í samstarfi um að meta ástand vega og náttúruverndarsvæða að vori.

Stofnanirnar þrjár hafa gert með sér minnisblað sem má nálgast hér: Minnisblað um akstursundanþágur, þar sem fjallað er um tilhögun undanþáguveitingar á akstri á hálendisvegum þar sem ferðaþjónustuaðilar geta fengið undanþágur þau ár sem ekki er hægt að opna vegi og náttúruverndarsvæði fyrr en í byrjun sumars.

Á vef  Vegagerðarinnar eru upplýsingar um lokanir og opnun fjallvega og hvenær undanþága á akstri inn á lokuð svæði kemur til greina. Má nálgast þær upplýsingar hér: Opnun fjallvega  

Það er mikilvægt að hvorki ganga, hjóla né keyra um svæði sem eru viðkvæm vegna aurbleytu.

Göngum vel um náttúruna og stöndum saman vörð um náttúru Íslands!