Stök frétt

Verið velkomin á opnun sýningarinnar Séstey / Hverfey í Surtseyjarstofu, Vestmannaeyjum, laugardaginn 18. júní milli kl. 17:00 - 18:30. Sýningin er með verkum eftir Þorgerði Ólafsdóttur. Klukkan 17:30 munu Þorgerður og Magnús Freyr Sigurkarlsson, sérfræðingur hjá Umhverfisstofnun, leiða gesti um sýninguna.

Á sýningunni sýnir Þorgerður ný listaverk og aðra muni samhliða fastasýningu Umhverfisstofnunar í Surtseyjarstofu. Sýningin er hluti af stærra verkefni og listrannsókn sem Þorgerður hefur unnið að undanfarið ár í tengslum við Surtsey undir yfirskriftinni Island Fiction og lýkur með útgáfu nýs bókverks árið 2023, á 60 ára gosafmæli Surtseyjar.

Mynd: Sýningin er hluti af listrannsókn sem Þorgerður hefur unnið að undanfarið ár í tengslum við Surtsey.

Í nýlegum verkum veltir Þorgerður upp hugmyndum um hvernig nýr staður verður til í menningarlegum skilningi og gerir tilraun til að kortleggja breytileika Surtseyjar út frá náttúrulegum ferlum og þeim sem við mannfólkið ýtum af stað. Fyrir sýninguna skoðaði Þorgerður meðal annars rekaefni frá Surtsey og fótspor varðveitt í móbergi í samhengi við minjar og táknmyndir mannaldar.

Úr sýningarskrá: 

Sökum friðunar og staðsetningar hefur komið í ljós hvað Surtsey er kjörinn mælikvarði á áhrif loftslagsbreytinga og magn plasts í umhverfinu. Í ljósmyndaseríunni Sögumenn (Storytellers) er rýnt í sögu framandsteina og sjórekins plasts. 

Talið er að framandsteinar sem fundist hafa á Surtsey, hafi komið með ísjökum frá Grænlandi, sokkið svo niður á hafsbotn og síðar komið upp á yfirborðið í eldgosinu sem myndaði Surtsey.

Í nokkur ár hefur Umhverfisstofnun farið fyrir hreinsun á sjóreknu plasti og öðru rekaefni á Surtsey sem skolar á land. Hægt er að bera kennsl á flesta hlutina og áttað sig á því hvert fyrra hlutverk þeirra var. Aðrir hafa ferðast óravegu og umbreyst svo mikið og mótast af sögu sinni að þeir eru óþekkjanlegir í dag. 

Þessir ólíku munir, framandsteinar og plast, eiga það sameiginlegt að vera samansafn af því umhverfi sem þeir hafa ferðast um þar til þeir enduðu báðir á Surtsey.

Í verki sínu nálgast Þorgerður þessa muni af forvitni og spyr - ekki hvað þeir voru, heldur hvað þeir eru í dag - og hvaða sögu þeir hafa að segja.

Skoða sýningarskrá.

Mynd: Sýningin Séstey / Hverfey hefur verið opnuð í Sursteyjarstofu í Eldheimum.

Fyrir verkefnið sitt sótti Þorgerður um rannsóknarleyfi til Surtseyjar og fór með jarðfræðileiðangrinum út í eyju sumarið 2021. Hluti verkanna á sýningunni er því innblásin eftir dvöl hennar á eyjunni. Þorgerður er jafnframt í samstarfi við Umhverfisstofnun að vinna frekar með sjórekið plast og aðrar mannvistarleifar sem hreinsað verður úr eyjunni næstu árin.

Sýningin Séstey / Hverfey er unnin í samstarfi við Umhverfisstofnun sem hefur annast fastasýningu um myndun og mótun Surtseyjar frá árinu 2014 í Eldheimum, Vestmannaeyjum.

Frekari viðburðadagskrá verður kynnt síðar í tengslum við sýningarnar í Surtseyjarstofu þegar líður að 60. afmælisári Surtseyjar.

Sýningarnar í Surtseyjarstofu eru opnar samhliða opnunartíma Eldheima (Suðurvegur / Gerðisbraut 10, Vestmannaeyjar), milli kl. 11:00 - 17:00, alla daga. 

Um myndlistarkonuna

Þorgerður Ólafsdóttir (f. 1985) myndlistarkona, býr og starfar í Reykjavík. Í verkum sínum skoðar hún ólíka hluti og fyrirbæri sem eru samofin skilningi okkar og sambandi við náttúruna á tímum mikillar vitundarvakningar. Hún vinnur með hugmyndir um tíma, minjar og birtingarmyndir mannaldar og sameinar viðfangsefni sín þvert á fræðasvið með aðferðum myndlistar.

Þorgerður útskrifaðist með meistaragráðu í myndlist frá Glasgow School of Art árið 2013. Hún var formaður stjórnar Nýlistasafnsins á árunum 2014 – 2018 og hefur unnið að ýmsum sýningum, sjálfstæðum verkefnum og útgáfum hér heima og erlendis.

Hún er hluti af þverfaglega rannsóknarverkefninu Relics of Nature, an Archaeology of Natural Heritage in the High North sem snýr að menningar - og náttúruminjum á norðurslóðum á tímum loftslagsbreytinga.

Mynd: Þorgerður Ólafsdóttir, myndlistarkona.

Þátttakendur og þakkir

Umhverfisstofnun, Náttúrufræðistofnun Íslands, Surtseyjarfélagið, Kvikmyndasafn Íslands, Veðurstofa Íslands, FabLab Reykjavík & Eldheimar.

Styrktaraðilar

Starfslaunasjóður Listamanna, Myndstef, Umhverfisstofnun og Myndlistarsjóður.