Stök frétt

Umhverfisstofnun óskar eftir tilnefningum til Bláskeljarinnar 2022. Viðurkenningin verður veitt fyrirtæki, stofnun, einstaklingi eða öðrum fyrir framúrskarandi lausnir sem stuðla að minni plastnotkun og plastúrgangi í samfélaginu. 

Viðurkenningin er hluti af aðgerðum umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra til að draga úr neikvæðum áhrifum plastnotkunar. Henni er ætlað að draga fram það sem vel er gert og hvetja til nýsköpunar. Sérstök úthlutunarnefnd velur viðurkenningarhafa en hana skipa fulltrúar frá háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneyti, Plastlausum september, Samtökum iðnaðarins, Umhverfisstofnun og Ungum umhverfissinnum. 

Óskað er eftir því að stutt greinargerð fylgi með tilnefningunum. Fyrirtæki, einstaklingar og stofnanir geta hvort heldur tilnefnt sig sjálf eða verið tilnefnd af öðrum. 

Við val á verðlaunahafa er horft til eftirfarandi þátta: 

  • nýsköpunargildis viðkomandi lausnar 
  • hvort lausnin styðji við hugmyndafræði hringrásarhagkerfisins 
  • hvert almennt framlag lausnarinnar er til umhverfismála 
  • hvaða plastvöru er verið að komast hjá með lausninni 
  • hefur lausnin möguleika á að komast í almenna notkun 

Tillögur skulu berast Umhverfisstofnun eigi síðar en 20. júlí næstkomandi, merktar „Tilnefning: Bláskelin“ á netfangið ust@ust.is eða með pósti til Umhverfisstofnunar, Suðurlandsbraut 24, 108 Reykjavík. 

Umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra mun veita viðurkenninguna í tengslum við árvekniátakið Plastlaus september

Meira um Bláskelina