Stök frétt

Mynd: Skarphéðinn G. Þórisson
Umsóknafrestur um veiðileyfi á hreindýr rennur út á miðnætti í dag, þriðjudaginn 28. febrúar.

Hægt er að sækja um leyfi í gegnum þjónustugátt Umhverfisstofnunar og fólki bent á að til að umsókn sé tekin gild þurfa umsækjendur að ganga úr skugga um að hafa hreindýraheimild á veiðikortinu sínu.

Hafi umsækjandi ekki hreindýraheimild á veiðikorti sínu þarf veiðimaður að vera með B-skotvopnaréttindi.  Hægt er að skila staðfestingu B-réttinda gegnum þjónustugáttina meðan umsóknafrestur veiðileyfa er virkur.