Umhverfisvísar

Umferdarljos_an_bakgr-Oll_ljos-96dpi

Umhverfisvísar

Miðlun upplýsinga er meginhlutverk umhverfisvísa. Þeim er ætlað að halda fram eða auka við upplýsingar um efnið sem þeir beinast að. Líkamshiti er vísir sem við notumst reglulega við. Hann veitir mikilvægar upplýsingar um líkamlegt ástand okkar, en öllum er ljóst að hann einn og sér er ekki nægjanlegur til að meta hvort allt er í lagi. Á sama hátt veita umhverfisvísar mikilvægar upplýsingar um fyrirbæri sem eru álitin dæmigerð og/eða þýðingarmikil um umhverfisleg gæði en hver um sig er ekki tæmandi lýsing á ástandi umhverfisins.

Upplýsingamiðlun kallar á einföldun. Umhverfisvísar einfalda ávallt flókinn veruleika. Þeir beina sjónum okkar að tilteknum fyrirbærum sem talin eru skipta máli og sem upplýsingar eru fyrirliggjandi um. Þegar kemur að stefnumótun gegna umhverfisvísar þríþættu hlutverki:Þeir veita vísbendingar um umhverfisvanda svo stefnumótendur geti metið hversu alvarlegur hann er.þeir styðja við stefnumörkun og forgangsröðun.Þeir eru gagnlegir við mat á viðbrögðum við stefnumótun.Umhverfisvísar eru einnig öflugt tæki til að efla vitund almennings um umhverfismál. Upplýsingagjöf um helstu orsakir, áhrif og viðbrögð er vel þekkt aðferð til að efla stuðning almennings við stefnumótandi aðgerðir.


DPSIR_hlutlaus


Hægt er að skipta umhverfisvísum í flokka eftir því hvað þeim er ætlað að sýna og hvort þeir snúa að starfsemi mannsins eða að umhverfinu. Hér eru umhverfisvísarnir flokkaðir í 5 flokka samkvæmt flokkun Umhverfisstofnunar Evrópu (DPSIR flokkun, http:/www.eea.europa.eu).

Drifkraftar: Hagrænir og félagslegir þættir og starfsemi sem valda mismiklu álagi á umhverfið eftir eðli og umfangi. Dæmi: Íbúaþéttleiki, samgöngur, atvinnurekstur.

Álag: Þættir í starfsemi manna sem valda beinu álagi á umhverfið. Dæmi: Losun mengunar, auðlindanýting eins og vatnsnýting og veiðar.

Ástand: Núverandi ástand og þróun umhverfisins. Dæmi: Mengun í umhverfinu, fjölbreytni tegunda, magn auðlinda eins og vatns og fiskistofna.

Áhrif: Áhrif umhverfisbreytinga á heilsu almennings og umhverfisins. Dæmi: aukin sjúkdómstíðni vegna loftmengunar og næringarefnaauðgun í vötnum.

Viðbrögð: Viðbrögð samfélagsins í umhverfismálum til að vinna gegn neikvæðum áhrifum. Dæmi: Fjárfestingar til að draga úr mengun, endurnýting og endurvinnsla, stækkun og fjölgun náttúruverndarsvæða.   

Umferdarljos_an_bakgr-Oll_ljos-96dpi

 

UMFERÐARLJÓSIN  eru ábending um hvert stefnir.

 Rauður er ábending um slæma stöðu og að stefnir í neikvæða átt og/eða að ólíklegt er að markmið náist.

 

Gulur bendir til þess að óljóst sé hvert stefmir eða að vandamál séu til staðar þrátt fyrir einhvern árangur.

 

Grænn bendir til góðrar stöðu og að stefnt er í rétta átt og/eða að markmið eru að nást.



 

 

 


Útlit síðu:

Leit





þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica innrinetinnrinet - nánari upplýsinga á heimasíðu eplica.