Vinna við nýjar heimasíður Umhverfis- og orkustofnunar og Náttúruverndarstofnunar er í gangi. Heimasíða Umhverfisstofnunar er virk á meðan vinnunni stendur. Information in English

Hættu- og varnaðarsetningar

Hættu- og varnaðarsetningar eru hluti af merkingu hættulegra efna og efnablandna. Þetta eru staðlaðar setningar og ræðst notkun þeirra af flokkuninni og að nokkru leyti af tilætlaðri notkun.

Hættusetningar tilgreina hvaða hættulega eiginleika efni eða blanda býr yfir. Varnaðarsetningar leiðbeina um notkun, geymslu, forvarnir, viðbrögð og förgun.

Hægt er að nota Verkfæri fyrir hættumerkingar til að fletta upp stöðluðum hættu- og varnaðarsetningum.

Vert er að vekja athygli á nýjum hættusetningum (sjá hér fyrir neðan) sem hefur verið bætt við verkfæri fyrir hættumerkingar: 

 

Flokkun

 

Hættusetning

Viðvörunarorð

ED HH1

EUH380

Getur valdið innkirtlatruflunum hjá mönnum

Hætta

ED HH2

EUH381

Grunað er um að valda innkirtlatruflunum hjá mönnum

Varúð

ED ENV 1

EUH430

Getur valdið innkitlatruflunum í umhverfinu

Hætta

ED ENV 2

EUH431

Grunað er um að valda innkirtlatruflunum í umhverfinu

Varúð

PBT

EUH440

Safnast upp í umhverfinu og lífverum, þ.m.t. Í mönnum

Hætta

vPvB

EUH441

Safnast upp í umhverfinu og lífverum, þ.mt. Í mönnum í miklum mæli

Hætta

PMT

EUH450

Getur valdið langvarandi og dreifðri mengun vatnsauðlinda

Hætta

vPvM

EUH451

Getur valdið mjög langvarandi og dreifðri mengun vatnsauðlinda

Hætta