Vinna við nýjar heimasíður Umhverfis- og orkustofnunar og Náttúruverndarstofnunar er í gangi. Heimasíða Umhverfisstofnunar er virk á meðan vinnunni stendur. Information in English

Losun þungmálma

Uppsprettur þungmálma sem losna út í andrúmsloftið eru meðal annars vegasamgöngur, álframleiðsla og fiskiskip. Bókhald Umhverfis- og orkustofnunar heldur utan um eftirfarandi þungmálma:

  • Blý - Pb
  • Kadmín - Cd
  • Kvikasilfur - Hg
  • Arsen - As
  • Króm - Cr
  • Kopar - Cu
  • Nikkel - Ni
  • Selen - Se
  • Sink - Zn

Blý, kadmín og kvikasilfur (Pb, Cd og Hg)  

Losun á blýi (Pb), kadmíni (Cd) og kvikasilfri (Hg) á Íslandi er fyrst og fremst frá eftirfarandi uppsprettum:

  • Bremsu- og vegslit: Losun blýs og kvikasilfurs frá vegasamgöngum hefur aukist vegna aukinnar eldsneytisnotkunar.

  • Álframleiðsla:Álframleiðsla er helsta uppspretta kadmínlosunar og veldur einnig losun blýs. Losunin jókst talsvert árin 2006-2008 vegna aukinnar framleiðslu og hefur haldist nokkuð stöðug síðan þá.

  • Eldsvoðar: Eldsvoðar leiða til blýlosunar.

  • Innanlandsflug (lofttak og lending): Blýlosun verður vegna innanlandsflugs. Þessi losun hefur dregist mikið saman frá 1990 vegna minni notkunar flugvélabensíns.

  • Flugeldar: Ein af uppsprettum blýlosunar er flugeldanotkun. Aukningin síðan 1990 endurspeglar aukna flugeldanotkun sem er að mestu um áramót. Sjá má að losunin nær hámarki árið 2007, stuttu fyrir efnahagshrunið.

  • Hitaveitur: Hitaveitur sem nýttu sorpbrennslu sem orkugjafa voru starfræktar milli 1993 og 2013 sem leiddi til töluverðrar losunar á blýi, kadmíni og kvikasilfri.

  • Fiskiskip: Losun frá fiskiskipum er stór liður losunar á kadmíni og kvikasilfri og veldur einnig losun á blýi. Samdráttur í losun er að mestu vegna minni eldsneytisnotkunar fiskiflotans. Losun jókst þó á tímabilinu 1990-1996 þar sem hluti flotans sigldi óvenjulangt til veiða. Frá árinu 1996 hefur losun farið minnkandi með sveiflum sem endurspeglast í breytingum á aflamagni, fiskistofnum og öðrum náttúrulegum þáttum ásamt endurnýjun skipa og bættri orkunýtni.

  • Opinn bruni á úrgangi: Helsta uppspretta kvikasilfurslosunar á 10. áratug síðustu aldar var opinn bruni á úrgangi. Einnig stuðlaði hann að töluverðri kadmínlosun. Opinn bruni viðgekkst aðallega árin 1990 til 2004.

  • Bruni á sóttnæmum sjúkrahúsúrgangi: Bruni úrgangs er helsta uppspretta kvikasilfurslosunar á Íslandi undanfarin ár.

  • Líkbrennsla:Líkbrennsla er stækkandi þáttur kvikasilfurslosunar á Íslandi.


 

 

 

 

 


 

Arsen, króm, kopar, nikkel, selen, sink (As, Cr, Cu, Ni, Se, Zn)  

Losun á arseni, krómi, kopar, nikkeli, selen og sinki á Íslandi er fyrst og fremst frá eftirfarandi uppsprettum:

  • Fiskiskip: Losun frá fiskiskipum er stærsti liður losunar á selen og næst stærsti liður losunar á arseni og nikkeli. Samdráttur í losun er að mestu vegna minni eldsneytisnotkunar fiskiflotans. Losun jókst þó á tímabilinu 1990-1996 þar sem hluti flotans sigldi óvenjulangt til veiða. Frá árinu 1996 hefur losun farið minnkandi með sveiflum sem endurspeglast í breytingum á aflamagni, fiskistofnum og öðrum náttúrulegum þáttum ásamt endurnýjun skipa og bættri orkunýtni. Losun arsens og nikkels dróst verulega saman er takmarkanir á notkun svartolíu á fiskiskip tók gildi árið 2020.

  • Bremsu- og vegslit: Bremsu- og vegslit er stærsti liður losunar á krómi og kopar og næst stærsti liður losunar á selen og sinki. Losunin hefur aukist vegna aukningu í fjölda ekinna kílómetra.

  • Álframleiðsla: Álframleiðsla er stærsta uppspretta losunar á arseni, nikkeli og sinki í dag og næst stærsta uppspretta krómlosunar. Losunin jókst árið 1998 vegna nýs álvers sem þá var tekið í notkun og enn frekar árið 2006-2008 vegna stækkunar eins álvers og opnun annars. Losunin frá álframleiðslu hefur verið nokkuð stöðug frá 2008.

  • Hitaveitur: Hitaveitur sem byggja á sorpbrennslu voru starfræktar milli 1993 og 2013 sem leiddi til losunar á arseni.

  • Opinn bruni á úrgangi: Ein helsta uppspretta losunar á arseni og sinki árið 1990 var opinn bruni á úrgangi. Opinn bruni viðgekkst aðallega árin 1990 til 2004.

  • Flugeldar: Ein af uppsprettum losunar á krómi, kopar, nikkeli og sinki er flugeldanotkun. Aukningin frá 1990 endurspeglast í aukinni flugeldanotkun. Sjá má að losunin nær hámarki árið 2007, stuttu fyrir efnahagshrunið.

  • Innanlandssiglingar: Siglingar leiða til losunar á krómi, nikkeli og selen vegna eldsneytisbruna.

  • Steinefnaiðnaður: Losun á krómi og selen átti sér stað vegna sementsframleiðslu við bruna á kolum þar til framleiðslu var hætt árið 2012.

  • Rafmagn og hitaveitur: Eldsneytisbruni til raforkuframleiðslu leiðir til losunar á selen.

  • Eldsvoðar: Eldsvoðar leiða til sinklosunar.