Vinna við nýjar heimasíður Umhverfis- og orkustofnunar og Náttúruverndarstofnunar er í gangi. Heimasíða Umhverfisstofnunar er virk á meðan vinnunni stendur. Information in English

Stök frétt

Bráðabirgðaheimild vegna jarðborana, háhitaboranna RN-38.

Umhverfisstofnun auglýsir bráðabirgðaheimild fyrir Jarðborannir hf. vegna háhitaborunnar á RN-38. Vegna jarðhræringa og óvissustigs Almannavarna við fjallið Þorbjörn og annara ófyrirséðra atburða þurfti að breyta borplani framkvæmdarinnar og hefja borun á borstað 2. Umsækjandi hefur sent inn fullnægjandi umsókn til heilbrigðisnefndar Suðurnesja og hefur tillaga að starfsleyfi verið kynnt heilbrigðisnefnd og er í auglýsingu. Umhverfisstofnun er heimilt skv. 7. gr. a. laga nr. 7/1998 að veita rekstaraðila bráðabirgðaheimild að uppfylltum skilyrðum.

Athugasemdafrestur við auglýsinguna er til kl 13:00 þann 8. nóvember 2023. Athugasemdir skulu vera skriflegar og berast stofnunnin á netfangið ust@ust.is, merktum UST202311-017.