Mynd: Austin Nell - Unsplash
Umhverfisstofnun hefur ákveðið að vinna samkvæmt viðmiðum um heilsueflandi vinnustaði www.heilsueflandi.is og vinnur þannig að sífelldum umbótum með markvissum hætti að góðri öryggis- og heilsumenningu.
Öryggi starfsfólks og almennings er alltaf í forgrunni hjá Umhverfisstofnun. Ekkert verkefni er svo mikilvægt að hætta megi öryggi fólks við framkvæmd þess.
Umhverfisstofnun er til fyrirmyndar í öryggismálum og einsetur sér að vernda þau sem starfa fyrir stofnunina með því að skapa slysalaust vinnuumhverfi þar sem ekkert starfsfólk eða aðrir bíði heilsutjón vegna starfseminnar.
Allir sem starfa fyrir Umhverfisstofnun eru ábyrgir fyrir að gæta að eigin öryggi, tala fyrir auknu öryggi samstarfsfólks síns og leitast við að koma auga á, meta og stjórna áhættum í vinnuumhverfinu.
Starfsfólk er stutt og hvatt til heilbrigðs og vistvæns lífsstíls. Hreyfing er mikilvægur liður í því og stuðlar jafnframt að betri orku og andlegri heilsu.
Matur og hressing sem boðið er upp á í vinnunni er hollur kostur og vinnustaðurinn býður upp á fræðslu um hollt mataræði.
Við leggjum mikla áherslu á vellíðan og andlega heilsu og vinnum hvert og eitt og í sameiningu að því að öllum líði vel í vinnunni. Við styðjum við starfsfólk í veikindum og við meðferð við fíknivanda og endurkomu til starfa eftir meðferð.
Hvernig veitum við hvert öðru stuðning, bæði stjórnendur og starfsfólk?