Orka

Orka og raftæki

Þessi merki segja til um að varan hafi uppfyllt ákveðin skilyrði varðandi orku. Til að mynda er merkið Energy star til marks um að vara er sérlega sparneytin á rafmagn en merkið gerir enga kröfu um hráefnaval, notkun kemískra efna eða um orkusparnað í framleiðslu.

 

Orkumerki Evrópusambandsins

Merkið sýnir ör sem bendir ýmist á græna eða rauða liti. Grænt táknar sparneytni í orkunotkun. Rautt táknar mikla orkunotkun.

Merkið sýnir einnig táknmyndir til að greina frá árlegri orkunotkun vörunnar ásamt öðrum eiginleikum svo sem hávaða.

Árið 2021 var Orkumerki Evrópusambandsins breytt og kröfur hertar. Nýja merkið er einfaldara en það var áður, er á skalanum A-G og kemur í stað merkjanna sem veita vottun allt upp í A+, A++ og A+++.

Eftirfarandi vöruflokkar skulu vera auðkenndir með Orkumerki Evrópubandalagsins:

  • Ís- og frystiskápar
  • Uppþvottavélar
  • Þvottavélar
  • Þurrkarar
  • Sameiginglegar þvottavélara og þurrkarar
  • Rafmagnslampar
  • Rafmagnsofnar
  • Loftræstikerfi fyrir heimilisnotkun
  • Sjónvörp
  • Hjólbarðar

 

 

 

Energy star

Merkið er undir eftirliti Umhverfisverndarstofnunar Bandaríkjanna.
Energy Star er valfrjáls merking fyrir sparneytin skrifstofutæki, til að mynda tölvur, tölvuskjái, prentara og ljósritunarvélar. Vörurnar skulu vera sparneytnar á orku, bæði við notkun og í dvala. Til að hljóta Energy Star verða vörur að fara sjálfkrafa í dvala eða slökkva á sér þegar þær eru ekki í notkun.


Vörur með Energy Star merkið hafa farið í gegnum úttekt þriðja aðila til að staðfesta að varan uppfylli kröfur merkisins.

Lestu meira um Energy Star á heimasíðu Evrópusambandsins


 

Raftækjamerkið

Á raf- og rafeindatækjum sem skila skal til endurvinnslu er lítil mynd af yfirstrikaðri sorptunnu á hjólum eins og hér er sýnt. Þetta merki er að finna t.d. á raftækjum, rafhlöðum og sparperum.

Merkið þýðir að ekki má henda vörunni í ruslafötuna, heldur ber að skila því til endurvinnslu.

Öll ný raftæki skulu bera raftækjamerkið. Raftækja úrgangur er bæði hættulegur og sístækkandi úrgangsflokkur. Raf- og rafeindatæki innihalda fjölda efna sem slæm eru fyrir umhverfið, einkum þungmálma. Merkið skal vera sýnilegt, læsilegt og óafmáanlegt.

Lestu meira um merkið á heimasíðu Framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins

 

TCO Certified

Að merkinu standa sænsku samtökin TCO Development. Vörur sem merktar eru TCO merkinu mega ekki innihalda klór – eða brómeruð eldvarnarefni. TCO merktar vörur eru endurvinnanlegar.
TCO gerir meðal annars kröfur um:

  • Upplýsingaflæði til neytenda
  • Samfélags- og umhverfislega ábyrga framleiðslu
  • Minni hitalosun frá vörum og þar af leiðandi minni orkunotkun og betri loftgæði innandyra
  • Minni losun þungmálma, brómeraðra eldvarnarefna og annarra efna.

TCO Certified er áreiðanlegt og viðurkennt umhverfismerki af tegund 1.

Lestu meira um merkið á heimasíðu TCO Certified

 

EPEAT 

Að merkinu standa bandarísku samtökin Global Electronics Council. EPEAT er valfrjáls merking fyrir tæknivörur og þjónustu. 
Vörur merktar með EPEAT þurfa að uppfylla gefin umhverfisskilyrði, þar á meðal um val á hráefnum, samdrátt í losun gróðurhúsalofttegunda í virðiskeðju, orkusparnað og hringrásarhönnun. Vörurnar eru svo flokkaðar í brons, silfur og gull eftir því hversu mörg valkvæð viðmið þau uppfylla til viðbótar.
EPEAT er áreiðanlegt og viðurkennt umhverfismerki af tegund 1. 

Lestu meira um merkið á heimasíðu EPEAT.