Fjölmennasta starfsstöð Umhverfisstofnunar er í Reykjavík. Vegna virkrar stefnu stofnunarinnar um störf án staðsetningar teygir starfsemin sig um land allt.
Heimilisfang: Suðurlandsbraut 24, 108 Reykjavík.
Sími: 591 2000
Netfang:
ust@ust.is
Umhverfisstofnun hvetur alla að nýta sér umhverfissvænar samgöngur. Góðir göngu- og hjólastígar eru í grennd við starfsstöðina í Reykjavík ásamt góðri aðstöðu til að geyma hjól bæði fyrir aftan og framan húsnæðið.
Auðvelt er að taka Strætó að starfsstöðinni þar sem nokkrar leiðir Strætó ganga í grennd við Umhverfisstofnun með stoppistöðvum við Suðurlandsbraut 24. Smellið á yfirlitskort Strætó hér fyrir neðan til að finna þá leið sem ykkur hentar með Strætó. Á kortinu má einnig má finna aðgengilegar rafskútur sem hægt er að taka á leigu.
Umhverfisstofnun býður upp á ókeypis hleðslu fyrir rafbíla við starfsstöð sína á Suðurlandsbraut 24.
Hleðslustöðin er opin á vinnutíma, á milli 7 og 18. Tenglar eru tveir talsins af „Type 2“ tegund.
Æskilegt er að notendur virði tímatakmörkin 90 mínútur í hleðslu svo fleiri njóti.
Húsnæði Umhverfisstofnunar á Suðurlandsbraut er Svansvottað. Endurbætur sem gerðar voru á húsnæðinu árið 2019 voru fyrstu Svansvottuðu endurbætur á húsnæði á Norðurlöndunum.
Nánar um Svansvottuðu endurbæturnar.