Landmannalaugar

Bókunarkerfi 2024

Frá 20. júní til 15. september 2024 þurfa gestir sem koma akandi á eigin vegum á milli kl. 8 og 15 að bóka bílastæði fyrirfram og greiða þjónustugjald áður en komið er til Landmannalauga.

Svæðið allt er opið fyrir umferð allan sólarhringinn og er hægt að koma og leggja í Landmannalaugum án þess að eiga bókun fyrir kl. 8 og eftir kl. 15. Gestir eru hinsvegar hvattir til að nýta aðra ferðamáta og koma með rútum eða skipulögðum hópferðum til að draga úr bílaumferð á svæðinu.

Er þetta í fyrsta sinn sem bókunarkerfi er notað með þessum hætti á friðlýstu svæði á Íslandi. Um er að ræða álagsstýringu sem ákveðið hefur verið að taka upp til að draga úr umferðarteppu og öngþveiti sem daglega hefur skapast á bílastæðum og aðkomuleiðum inn að Landmannalaugum síðustu sumur.


Frá 20. júní til 15. september frá kl. 8 - 15 þarf að bóka bílastæði í Landmannalaugum / Mynd: Canva