Samkvæmt breytingu á lögum nr. 64/1994 um vernd, friðun og veiðar á villtum fuglum og spendýrum og reglugerð 424/2012 er veiðimönnum hreindýra og leiðsögumönnum þeirra skylt að standast verklegt skotpróf áður en haldið er til hreindýraveiða.
Skotfélög með viðurkennda skotvelli sjá um framkvæmd skotprófa. Alls eru það 22 skotfélög um allt land sem sjá um framkvæmdina með 97 tilnefnda prófdómara. Leyfishafar eru hvattir til að nýta sér æfingaaðstöðu þeirra og taka skotprófið fyrir 1. júlí hafi þeir fengið leyfi í fyrsta útdrætti. Annars sem fyrst eftir að hafa fengið úr endurúthlutuðum leyfum.
Hér á eftir er umfjöllun um skotprófið sem varðar það helsta sem próftaki þarf að hafa í huga þegar haldið er í próf.
Prófdómarinn fer yfir helstu atriði varðandi framkvæmdina á prófinu við upphaf prófsins. Hafðu í huga að prófið hefur tvennan tilgang. Annar er sá að kanna hvort þú búir yfir þeirri hittni sem krafist er og hinn að kanna hvort þú kunnir að meðhöndla skotvopn á ábyrgan hátt. Leyfilegt er að nota öll þau hjálpartæki sem þykir eðlilegt að hafa meðferðis á veiðar s.s. bakpoka, veiðistól, skotstaf til stuðnings, ól sem fest er í handlegg eða tvífót. Áður en prófið hefst sýnirðu prófdómaranum þau hjálpartæki sem þú hyggst nota við prófið og hann hefur síðasta orðið um það hvort heimilt er að nota það sem þú sýnir honum.
Þú mátt skjóta úr þeirri skotstellingu sem þú vilt en mátt ekki leggja riffilinn við fast undirlag. Afturskeftið má einungis snerta skyttuna, ekki jörðina eða annað fast undirlag. Skotstaðurinn er jörðin sjálf sem getur t.d. verið gras, möl eða annað undirlag og heimilt er að liggja á mottu ef þurfa þykir. Ekki er skotið sitjandi frá borði og þú átt að nota heyrnahlífar eða tappa. Ekki má nota sérstakan sjónauka til þess að skoða ákomu skota eftir að próf hefst.
Skotið er á 100 m færi og þú átt að skjóta fimm skotum á innan við fimm mínútum. Öll skotin eiga að snerta eða hafna innan í hrings á skotskífunni sem er 14 sm að þvermáli. Prófið hefst á því að prófdómarinn segir þér frá helstu reglum sem gilda um framkvæmd prófsins og að hans ábendingu kemurðu þér fyrir á skotstaðnum og yfirgefur hann ekki nema hafa heimild frá prófdómaranum til þess. Prófdómarinn gefur þér merki þegar tímatakan hefst og þá fyrst máttu setja skot í skotgeyminn á rifflinum. Ef um lausan skotgeymi er að ræða máttu ekki setja skot í hann fyrr en tímatakan hefst. Hlaðinn skotgeymir telst hlaðið skotvopn.
Ef eitthvað óvænt gerist eftir að tímataka hefst áttu möguleika á að leysa úr því ef það er innan tímamarkana. Ef það misferst að hlaða skotgeyminn rétt þarftu að leysa úr því innan tímamarkana. Ef skot hleypur ekki af þegar tekið er í gikkinn áttu undantekningalaust að gefa prófdómaranum merki og mátt ekki opna lásinn fyrr en 20 sek eru liðnar. Að þeim liðnum máttu opna lásinn og kanna orsökina. Próftíminn er ekki lengdur ef þú lendir í vandræðum með riffilinn. Tímatöku er hætt þegar þú ert búinn að skjóta fimmta skotinu. Ef þú ert búinn að stunda skotæfingar með rifflinum ætti ekkert óvænt að koma upp í prófinu.
Hafðu í huga að prófinu er ekki lokið fyrr en þú ásamt prófdómaranum eruð búnir að sækja skotskífuna og ganga til baka yfir próflínuna. Þá fyrst mun prófdómarinn gefa þér til kynna að prófinu sé lokið og hvort þú hafir staðist eða ekki. Þú þarft ávallt að hafa í huga að prófið snýst bæði um hittni og öryggisreglur.
Hægt er að falla á skotprófinu sé ekki farið nákvæmlega eftir öryggisreglum. Hluti af því er að ganga til og frá skotstað með óhlaðið skotvopn.
Ef öryggisreglurnar eru ekki virtar telst prófið fallið óháð því hversu vel skotfimin sjálf gekk. Þér er ekki heimilt að taka skotskífuna með þér að loknu prófi þar sem prófdómarinn heldur henni, en velkomið er að taka ljósmynd af skífunni til minningar um niðurstöðuna.
Ef svo fer að þú nærð ekki prófinu hefurðu möguleika á tveimur tilraunum til viðbótar en þarft að greiða prófgjald fyrir hvert tekið próf. Heimilt er að endurtaka prófið samdægurs ef þess er óskað en hafa ber í huga að ef til vill er ráðlegt að æfa sig betur og kynnast rifflinum vel áður en reynt er aftur við prófið, allt eftir því hvað þú treystir þér til að gera. Æfingin skapar meistarann.
Gangi þér vel.
Framkvæmdaraðilar | |
Skaust | Skotfélag Vestmannaeyja |
Skotdeild Keflavíkur | Skotfélagið Dreki |
Skotfélag Akureyrar | Skotfélagið Markmið Grindavík |
Skotfélag Hólmavíkur | Skotfélagið Ósmann |
Skotfélag Húsavíkur | Skotíþróttafélag Ísafjarðar |
Skotfélag Kópavogs | Skotíþróttafélag Suðurlands |
Skotfélag Ólafsfjarðar | Skotíþróttafélag Vestfjarða |
Skotfélag Reykjavíkur | Skotreyn |
Skyttur Rangárvallasýslu | Skotfélag Patreksfjarðar |
Skotfélag Vesturlands |
Skotmenn Djúpavogs |
Skotfélag Hornafjarðar |
Skotfélag Akraness |
Skotfélagið Markviss |