Sjáðu þrívíddarkort af svæðinu.
Eldborg var friðlýst sem náttúruvætti árið 1974. Eldborg er sérstaklega formfargur eldgígur sem stendur í miðju Eldborgarhrauni í Hnappadal. Eldborg tilheyrir eldstöðvarkerfi Ljósufjalla.
Stærð náttúruvættisins er 125 ha.
Eldborg er í miðju Eldborgarhrauni í Hnappadal 38 km norðan Borgarnes. Gengið er frá Snorrastöðum, en þaðan liggur gönguleið í gegnum kjarrivaxið hrauni 3.4 km. Ferðaþjónusta er á Snorrastöðum og þar er að finna bílastæði og salernisaðstöðu. Svæðið er opið allt árið, en aðgengi getur orðið erfitt þegar snjór er mikill og því ber að hafa varann á sér. Svæðið er í umsjón Umhverfisstofnunar, heilsárslandvarsla er við Eldborg.
Öllum er heimil för um svæðið. Göngum vel um og berum virðingu fyrir náttúrunni og öðrum gestum.
Eldborg var friðlýst sem náttúruvætti árið 1974. Eldborg er sporöskjulaga eldgígur sem rís 100m yfir sjávarmál en 60m yfir hrauninu í kring. Eldborg er stærstur gíga á stuttri gossprungu, gígurinn er um 200m að lengd og 50m á dýpt. Talið er að þar hafi orðið tvö gos og það síðara sennilega á landnámsöld. Eldborg er hluti af eldstöðvarkerfi Ljósufjalla.
Gönguleiðin upp á Eldborg er fjölbreytt þar sem gengið er í gegnum kjarri vaxið hraun. Fallegar hraunmyndanir eru á leiðinni og ef vel er að gáð má vel sjá margar kynjaverur. Ofan af Eldborg er mikið útsýni í allar áttir. Í góðu skyggni má sjá fjallahring allt frá Snæfellsjökli og að Reykjanesi.