Upplýsingastefna

Umhverfisstofnun leggur metnað sinn í að koma faglegum upplýsingum um umhverfið og náttúruna á framfæri á skýran og skilmerkilegan hátt. Til að ná markmiðum um að vernda náttúruna og draga úr mengun þarf að miðla upplýsingum á þann hátt að einstaklingar og fyrirtæki hafi möguleika á að hafa jákvæð áhrif á umhverfi sitt. Það er jafnframt stefna Umhverfisstofnunar að upplýsingar um fagmálefni verði aðgengilegar almenningi og til þess gerðar að skapa traust á milli almennings, fjölmiðla og yfirvalda umhverfismála. Upplýsingarnar geta verið áhugaverðar og fræðandi í senn um allt milli himins og jarðar. Þetta eru málefni eins og loftlagsmál, hollustuvernd, verndun sjávar, dýravernd og sérstakir staðir í náttúru Íslands.

Leiðarljós

  • Auka þekkingu og vitund almennings um umhverfismál, hollustuhætti og náttúru Íslands
  • Upplýsingar séu aðgengilegar og settar fram með skýrum og einföldum hætti
  • Upplýsingamiðlun sé fagleg og traust
  • Vísindaleg þekking liggi til grundvallar þeim upplýsingum sem Umhverfisstofnun miðlar
  • Ákvarðanir Umhverfisstofnunar verði birtar eins fljótt og auðið er
  • Ný lög og reglugerðir sem áhrif hafa á starfsemi fyrirtækja eða varða hag almennings skulu kynntar sérstaklega
  • Fræðsluefni sem Umhverfisstofnun gefur út verði uppfært og endurnýjað reglulega
  • Veittar verði áreiðanlegar upplýsingar um umhverfisóhöpp og náttúruspjöll
  • Varsla gagna um umhverfismál sé trygg og skipuleg
  • Starfsfólk Umhverfisstofnunar hafi greiðan aðgang að upplýsingum um innri málefni stofnunarinnar
  • Ávallt skal leitast við að nota rafrænar leiðir við upplýsingamiðlun
Eftirlit í samræmi við kröfur

Eftirlit í samræmi við kröfur

Eftirlit með mengandi starfsemi fór í gegnum athugun IMPEL samtakanna.
Meira