Árnahellir í Leitahrauni

Árnahellir var friðlýstur sem náttúruvætti árið 2002. Í hellinum eru einstæðar jarðmyndanir og er hann í flokki örfárra hella á jörðinni sem skarta jafn glæsilegum og ósnortnum hraunmyndunum. Árnahellir fannst 1985 og geymir hann jarðminjar sem eru taldar merkar á heimsvísu.

Árnahellir svo og Jörundur, Híðið og Borgarhellir teljast meðal fegurstu hella landsins vegna litadýrðar.



Árnahellir er um 150 metrar á lengd. Hellirinn liggur á um 20 m dýpi undir yfirborði, breidd hans er um 10 metrar og lágt er til lofts. Dropsteinar Árnahellis verða seint taldir en líkja má þeim við frumskóg. Lengstu dropsteinar í hellinum eru rúmur metri á lengd og er þvermál þeirra um 7 cm. Sumir dropsteinanna eru þaktir gifsi að hluta, allt að 15 mm þykku. Lengstu hraunstráin um 60 cm. Loftið í hellinum er nær allt þakið hraunstráum, 5-10 mm í þvermál. Framandi steintegundir hafa fundist í Árnahelli, m.a. 2 cm langur grænblár steinn, ópall.

Stærð náttúruvættisins er 8 ha.