Stök frétt

Mynd: Daniel Sinoca - Unsplash
Umhverfisstofnun hefur fallist á að framlengja gildistíma starfsleyfis Arnarlax ehf. Gileyri, Tálknafirði, vegna landeldis á laxfiskum. 
Samkvæmt. 4. mgr. 6. gr. laga nr. 7/1998 um hollustuhætti og mengunarvarnir má útgefandi starfsleyfis framlengja gildistíma starfsleyfis meðan nýtt starfsleyfi er í vinnslu, að hámarki til eins árs, hafi fullnægjandi umsókn borist útgefanda. Áform um framlengingu voru auglýst á heimasíðu Umhverfisstofnunar 3. nóvember sl. til og með 9. nóvember.
Framlenging á starfsleyfi Arnarlax ehf. Gileyri er hér með veitt og mun gilda þar til nýtt starfsleyfi er gefið út eða í síðasta lagi til 2. desember 2024.
Ákvörðun Umhverfisstofnunar um framlengingu starfsleyfis er kæranleg til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála innan eins mánaðar frá birtingu hennar.
 
Tengd skjöl: