Á höfuðborgarsvæði og Suðvesturlandi

Gengið með landvörðum sumarið 2023 - Frítt að taka þátt

Landverðir á friðlýstum svæðum á höfuðborgarsvæðinu munu bjóða upp á fræðslustundir í sumar. Þar hljóta gestir fræðslu um náttúrufar svæðisins. Göngurnar verða auglýstar á samfélagsmiðlum og við bílastæði viðkomandi svæðis. 

Gestir eru hvattir til að nálgast landvörð sem mun þá verða tilbúinn til að ræða um það sem fyrir augum ber hverju sinni.  

Fræðsluviðburðir verða auglýstir með góðum fyrirvara.