Stök frétt

Mynd: Hafþór Snjólfur Helgason

Drög að stjórnunar- og verndaráætlun fyrir landslagsverndarsvæði norðan Dyrfjalla og náttúruvættið Stórurð hefur verið lögð fram til kynningar næstu 6 vikurnar. Svæðið var friðlýst 2. júlí 2021.

Áætlunin er unnin af fulltrúum umhverfisstofnunar, fulltrúum landeigenda og fulltrúum Múlaþings. Meginmarkmið með gerð stjórnunar- og verndaráætlunar er að leggja fram stefnu um verndun svæðisins og hvernig viðhalda skuli verndargildi þess þannig að sem mest sátt ríki um. Í áætluninni er lögð fram stefnumótum til framtíðar, ásamt aðgerðaáætlun til þriggja ára.

Áætlunin er sett fram í samræmi við 81. gr. laga nr. 60/2013 um náttúruvernd.

Óskað er eftir athugasemdum frá almenningi við drögin að áætluninni. Skilafrestur athugasemda er til og með 17. mars 2024.