Stök frétt

Umhverfisstofnun hefur móttekið umsókn fyrirtækisins Laxey ehf. áður Icelandic Land Farmed Salmon ehf. um starfsleyfi vegna seiðaeldisstöðvar í Viðlagafjöru, Vestmannaeyjum.
Í framhaldi verður unnin tillaga að starfsleyfi og þegar hún liggur fyrir er gert ráð fyrir að hún verði auglýst í fjórar vikur.
Öllum gefst tækifæri til að koma með athugasemdir á auglýsingatíma áður en ákvörðun um útgáfu starfsleyfisins verður tekin.